Hafró leggst gegn því að auka kvóta 3. apríl 2010 06:00 Sjómenn fullyrða að þorskgengd hafi sjaldan eða aldrei verið meiri. fréttablaðið/jse „
Í sjálfu sér höfum við engu við okkar ráðgjöf að bæta frá því í fyrra,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. „Menn verða að hafa hugfast að ákveðin nýtingarstefna í þorski er í gildi og almennt ekki inni í myndinni að auka aflaheimildir á þessu fiskveiðiári, frá okkar bæjardyrum séð. Vitaskuld getur komið til aukningar strax á næsta fiskveiðiári ef nýjar upplýsingar og úttekt að vori á fiskistofnunum gefur tilefni til þess.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti yfir áhyggjum af atvinnuástandi víða um land vegna yfirvofandi hráefnisskorts í grein í Fréttablaðinu á fimmtudag. Lokanir í landvinnslu eru yfirvofandi og þær munu standa vikum saman að óbreyttu. Í ljósi þessa telur forsætisráðherra rétt að það verði skoðað að auka aflaheimildir. Ríkisstjórnin mótaði hins vegar í fyrra nýtingarstefnu í þorskveiðum til fimm ára, eins og Jóhann vísar til, og sendi Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) bréf þess efnis í lok maí. Samkvæmt nýtingarstefnunni verður veiðiráðgjöf Hafró fylgt og byggt á því að veiðihlutfall sé aldrei meira en tuttugu prósent af viðmiðunarstofni. Þessi nýtingarstefna er, frá hendi vísindamanna Hafró, talin grundvöllur þess að tryggja sterkari hrygningarstofn og bætta nýliðun á næstu árum. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði aðspurður um orð forsætisráðherra að grundvallaratriðið sé að standa vörð um sjávarauðlindina til lengri og skemmri tíma; lög og reglur takmarki auk þess aðgerðir. Jón segist sem ráðherra ábyrgur fyrir málaflokknum þegar allt kemur til alls og það sé á hans ábyrgð að ákveða hvort aflaheimildir verði auknar. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir nauðsynlegt að auka aflaheimildir í þorski úr 150 í 200 þúsund tonn nú þegar, eins og sambandið hafi mælt með um árabil. „Ég fagna því að stjórnvöld séu tekin að skoða þetta í alvöru og efast ekki um að um þetta náist samstaða í ríkisstjórninni.“ Örn segir ástæðulaust að hafa áhyggjur af þorskstofninum. Sjómenn um allt land votti að fiskgengd sé nú áþekk því sem best gerist. Þess vegna sé sárgrætilegt að ræða við útgerðarmenn um uppsagnir vegna hráefnisskorts. svavar@frettabladid.is Örn Pálsson
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sjá meira