Slökkviliðsmenn segja Flugstoðir stefna mannslífum í hættu 4. mars 2010 09:56 MYND/Pjetur
Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur sent frá sér harðorða ályktun varðandi viðbúnaðarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli. Þar segir meðal annars að Flugstoðir ehf. stefni mannslífum í hættu með því að gera einungis ráð fyrir tveimur slökkviliðsmönnum á vakt hverju sinni. „Þann 1. mars s.l. tók Keflavíkurflugvöllur ohf. yfir viðbúnaðarþjónustu á Reykjavíkurflugvelli samkvæmt verktakasamningi sem gerður var við Flugstoðir ohf. Í þeim samningi er aðeins gert ráð fyrir tveimur slökkviliðsmönnum á vakt," segir í ályktuninni. Þar segir ennfremur að reynsla þeirra slökkvliðsmanna af Keflavíkurflugvelli sem hafa sinnt þessu verkefni síðustu daga hafi nú þegar sýnt fram á að um vanmönnun sé að ræða. „Það leiðir af sér að öryggi slökkviliðsmanna, flugfarþega og annara sem um Reykjavíkurflugvöll fara, er stefnt í hættu." Þá segir að það sé „með öllu óásættanlegt að Flugstoðir ohf skuli stefna mannslífum í hættu í þeim tilgangi að spara nokkrar krónur og verja ranga ákvarðanatöku." Að lokum er bent á að í janúar hafi Brunamálastofnun gefið út hvernig manna skuli viðbúnaðarþjónustuna. Þar kemur fram að fjóra slökkviliðsmenn þurfi til þess að sinna viðbúnaðarþjónustunni. Undir ályktunina ritar Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Mest lesið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Innlent Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Erlent Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Innlent Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“ Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sjálfsagt að taka málið fyrir: „Leysist ekkert sjálfkrafa við að ganga inn í Evrópusambandið“ Lögreglan hugsi yfir Skildi Íslands: Eitt lögbrot verði ekki réttlætt með öðru Eldur í verslunarhúsnæði á Laugavegi Play tekur dýfu í skugga afkomuviðvörunar og Njáll Trausti vill funda Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Laugavegurinn að „deyja úr velgengni“ Loftgæði mun betri á höfuðborgarsvæðinu Njáll Trausti vill fund hið fyrsta í atvinnuveganefnd Sjá meira