Með fálkaorðuna í beinni 8. janúar 2010 06:30 Eva María Jónsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir dagskrárgerðarkonur komust að því að þær eru báðar í nautsmerkinu. Fréttablaðið/stefán
Sjónvarpskonurnar vinsælu, Eva María Jónsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, verða kynnar í undankeppni Eurovision-sönglagakeppninnar í ár líkt og í fyrra. Eva María og Ragnhildur Steinunn hófu undirbúning fyrir útsendinguna stuttu fyrir jól en segja tónlistina vera í aðalhlutverki í þáttunum. „Við trúum því og treystum að þessi lög séu það skemmtileg að þau verði lífið og sálin í þættinum, við þurfum því ekki að hafa of mikið fyrir því að finna upp á einhverju skemmtilegu sjálfar. Við fáum þó gest til okkar í hverjum þætti og með honum einn leynigest,“ útskýrir Eva María og segir fyrsta gestinn vera Jóhönnu Guðrúnu, sigurvegara söngkeppninnar frá í fyrra. Þegar þær eru inntar eftir því hvort þær muni klæða sig í stíl líkt og í fyrra segja þær það enn óákveðið. „Þetta snerist svolítið í höndunum á okkur í fyrra. Við vildum ekki vera með búninga-„show“ en svo fengu fötin samt alltof mikla athygli. Ragnhildur Steinunn var að hugsa um að vera með fálkaorðu, sem hún hefur líklega fundið í einhverju morgunkorni og ég ætla að reyna að finna eina líka, en við erum ekki búnar að ákveða í hvaða fötum við verðum,“ segir Eva María hlæjandi og Ragnhildur Steinunn bætir við: „Það var sérstaklega gaman í fyrra þegar við áttum að velja föt því við enduðum einhvern veginn alltaf á því að kaupa nærföt, sem skilaði sér kannski ekki beint í prógrammið en okkur leið mjög vel í þeim.“ Stúlkurnar segja samstarfið ganga vel enda eigi þær ýmislegt sameiginlegt. „Við erum alltaf að komast að því að við eigum meira og meira sameiginlegt. Við erum báðar Jónsdætur og erum báðar naut. Ég tjekkaði meira að segja á því í Íslendingabók hvort við værum skyldar, en við erum það nú ekki,“ segir Eva María. Báðar hlakka þær mikið til undankeppninnar og segja alltaf gaman að vera í beinni útsendingu því stemningin í sjónvarpssalnum sé oftast lífleg og góð. „Það eina leiðinlega við að vera kynnir er að maður má hvorki halda með lagi né kjósa, við neyðumst til að vera algjörlega hlutlausar í þeim málum. En við kjósum bara um Icesave í staðinn,“ segir Eva María og hlær. sara@frettabladid.is
Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fleiri fréttir „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð Sjá meira