Fasískir fánar og jarðvegur fyrir lýðskrumara Erla Hlynsdóttir skrifar 5. október 2010 10:28 Mynd úr vefútsendingu Vísis í gærkvöldi
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir upplausnarástand ríkja í íslenskum stjórnmálum og bendir á að ríkisstjórnin hefur ekki haft meirihluta fyrir stefnumálum sínum á Alþingi. „Það er líklega það sem mun sprengja þessa ríkisstjórn og enda þessa fyrstu vinstri stjórn landsins. Það er auðvitað svolítið kaldhæðnislegt ef það á að vera vinstri armur Vinstri grænna sem á endanum sprengir fyrstu stjórn landsins," segir hann. Eiríkur var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur Í bítinu á Bylgunni í morgun. Sá mikli fjöldi fólks sem mótmælti við Alþingi í gærkvöldi er til marks um kröfu almennings um endurnýjun í stjórnmálum. Eiríkur segir ljóst að breytinga sé þörf en óljóst nákvæmlega hvað eigi að taka við. Hann segir ennfremur að ekki sé enn hægt að segja til um hvort að mótmælin í gær voru til marks um framhald af búsáhaldabyltingunni eða hvort nú er um að ræða eins konar gagnbyltingu.Fáni kúgunar og þrælahalds „Þarna í gær virtust vera saman komnir ýmsir hópar. Maður sá svarta anarkistafána, maður sá kommúníska byltingarfánann með mynd af Che Guevera," segir Eiríkur. „Svo sá maður fjöldann allan af fasískum fánum á lofti. Það var suðurríkjafáninn sem boðar kúgun og þrælahald, þar var keltneski krossinn sem er tákn nýnasista í Evrópu, og svo var nú bara hreint og beint nasistafáni þriðja ríkis Þýskalands þarna á lofti líka," segir hann.Nýtt Bandalag Jafnaðarmanna Eiríkur bendir á að ef litið sé til þeirra þróunar sem hefur átt sér stað í löndunum í kring um okkur þá sé víst að hér þurfi að koma fram nýtt afl sem getur fyllt í þá eyðu sem hefur myndast hjá þjóðinni. Hann rifjar upp eldri stjórnmálaöfl hér á landi. „Ef það væri hægt að fá Bandalag Jafnaðarmanna undir forystu Mannsins og Vilmundar Gylfasonar þá held ég að það væri eitthvað sem fólki gæti hugnast vel," segir hann.Hægri popúlistar Hættan sé hins vegar að hér geti myndast jarðvegur fyrir lýðskrumarahreyfingu, „svona hægri popúlistahreyfingu. Það er auðvitað ekki það sem þarf að gerast en það er hætta á því og við þurfum að vera vakandi fyrir öllu slíku," Eiríkur. Hann vekur athygli á því hversu margir möguleikar komi til greina þegar ný öfl myndast. „Við myndum ekki vilja fá týpu eins og Piu Kærsgaard í Danmörku eða Geer Wilders frá Hollandi," segir Eiríkur en þau hafa bæði vakið athygli sem öfgafullir þjóðernissinnar og andstæðingar múslima. Eiríkur bendir á að lýðræði gangi út á að fólk taki þátt og verji atkvæði sínum með gagnrýnum hætti. „Ef það er ekkert í boði sem fólki hugnast í stjórnmálum þá er það bara skylda borgara í lýðræðislegu þjóðfélagi að bjóða sig sjálft fram," segir hann. Viðtalið má hlusta á hér í heild sinni.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira