Innlent

Fasískir fánar og jarðvegur fyrir lýðskrumara

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd úr vefútsendingu Vísis í gærkvöldi
Mynd úr vefútsendingu Vísis í gærkvöldi

Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir upplausnarástand ríkja í íslenskum stjórnmálum og bendir á að ríkisstjórnin hefur ekki haft meirihluta fyrir stefnumálum sínum á Alþingi. „Það er líklega það sem mun sprengja þessa ríkisstjórn og enda þessa fyrstu vinstri stjórn landsins. Það er auðvitað svolítið kaldhæðnislegt ef það á að vera vinstri armur Vinstri grænna sem á endanum sprengir fyrstu stjórn landsins," segir hann.

Eiríkur var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur Í bítinu á Bylgunni í morgun.

Sá mikli fjöldi fólks sem mótmælti við Alþingi í gærkvöldi er til marks um kröfu almennings um endurnýjun í stjórnmálum. Eiríkur segir ljóst að breytinga sé þörf en óljóst nákvæmlega hvað eigi að taka við. Hann segir ennfremur að ekki sé enn hægt að segja til um hvort að mótmælin í gær voru til marks um framhald af búsáhaldabyltingunni eða hvort nú er um að ræða eins konar gagnbyltingu.

Fáni kúgunar og þrælahalds

„Þarna í gær virtust vera saman komnir ýmsir hópar. Maður sá svarta anarkistafána, maður sá kommúníska byltingarfánann með mynd af Che Guevera," segir Eiríkur. „Svo sá maður fjöldann allan af fasískum fánum á lofti. Það var suðurríkjafáninn sem boðar kúgun og þrælahald, þar var keltneski krossinn sem er tákn nýnasista í Evrópu, og svo var nú bara hreint og beint nasistafáni þriðja ríkis Þýskalands þarna á lofti líka," segir hann.

Nýtt Bandalag Jafnaðarmanna

Eiríkur bendir á að ef litið sé til þeirra þróunar sem hefur átt sér stað í löndunum í kring um okkur þá sé víst að hér þurfi að koma fram nýtt afl sem getur fyllt í þá eyðu sem hefur myndast hjá þjóðinni. Hann rifjar upp eldri stjórnmálaöfl hér á landi. „Ef það væri hægt að fá Bandalag Jafnaðarmanna undir forystu Mannsins og Vilmundar Gylfasonar þá held ég að það væri eitthvað sem fólki gæti hugnast vel," segir hann.

Hægri popúlistar

Hættan sé hins vegar að hér geti myndast jarðvegur fyrir lýðskrumarahreyfingu, „svona hægri popúlistahreyfingu. Það er auðvitað ekki það sem þarf að gerast en það er hætta á því og við þurfum að vera vakandi fyrir öllu slíku," Eiríkur.

Hann vekur athygli á því hversu margir möguleikar komi til greina þegar ný öfl myndast. „Við myndum ekki vilja fá týpu eins og Piu Kærsgaard í Danmörku eða Geer Wilders frá Hollandi," segir Eiríkur en þau hafa bæði vakið athygli sem öfgafullir þjóðernissinnar og andstæðingar múslima.

Eiríkur bendir á að lýðræði gangi út á að fólk taki þátt og verji atkvæði sínum með gagnrýnum hætti. „Ef það er ekkert í boði sem fólki hugnast í stjórnmálum þá er það bara skylda borgara í lýðræðislegu þjóðfélagi að bjóða sig sjálft fram," segir hann.

Viðtalið má hlusta á hér í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×