Brá þegar ferlíkið birtist úr djúpinu 10. mars 2010 05:00 Stemning myndaðist niðri við höfn þegar hákarlinum var landað, eða honum slefað á land, enda hafði ekki verið nokkur leið að koma honum um borð í bátinn vegna stærðarinnar. Mynd/Róbert Schmidt
Línubáturinn Lukka ÍS 357 frá Suðureyri kom með heldur óvenjulegan afla að landi á mánudag, 680 kílóa þungan hákarl sem var tæpir fimm metrar á lengd og rúmir tveir metrar að ummáli. Stærstir verða hákarlar sjö metra langir og um tonn að þyngd. Báturinn er 60 tonna, ellefu metrar að lengd. Hákarlinn slagaði því vel upp í hálfa bátslengdina. Hákarlinn hafði flækt sig í línuna hjá Sigurði Oddssyni sem gerir út Lukku ÍS í Nesdýpi og var með lífsmarki þegar að var komið. Sigurður, sem er einn í áhöfn, segist hafa brugðið á það ráð að koma tóg í sporðinn á hákarlinum og kveður hann hafa drepist fljótt þegar hann var dreginn aftur á bak. „En jú, manni bregður aðeins við að sjá þetta koma upp úr djúpinu,“ viðurkennir Sigurður. Hann segist hins vegar hafa áttað sig á því um leið hvers kyns var því í janúar kom það líka fyrir að hákarl flækti sig í línunni hjá honum. „Sá var reyndar helmingi minni, en núna vissi maður að minnsta kosti hvernig best var að bera sig að.“ Þótt Sigurður hafi nú í annað sinn á tiltölulega skömmum tíma veitt hákarl á línu segir hann fenginn óvenjulegan. „Í það minnsta eru þetta fyrstu tveir hákarlarnir sem ég fæ.“ Sigurður segir búbót að fengnum þótt misjafnt sé hvað greitt sé fyrir hákarl. „Maður er að fá einhvern sextíukall fyrir kílóið, bara svona eins og hann kemur fyrir,“ segir hann ánægður með túrinn, en fyrir vestan gantast menn með að annar eins afli hafi þar tæpast fengist á einn línubala. „Ég var kominn með um 300 kíló á balann og þá kom hann í restina á balann, þannig að það er gott tonn á balann og ekkert oft sem það er.“ Fyrstu fregnir af hákarlinum birtust á vefnum www.sudureyri.blog.is en þar kemur fram að hákarlinn verði skorinn og verkaður á næstu dögum og verði tilbúinn fyrir næsta þorrablót að ári. olikr@frettabladid.is með fenginn Sigurður Oddsson skipstjóri stillir sér upp við hákarlinn. Mynd/Róbert Schmidt
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Sjá meira