Blönduóslöggan tálguð í spýtu 5. mars 2010 19:12
Hin landsfræga Blönduóslögga er orðin uppspretta minjagripaframleiðslu. Listakona í bænum tálgar út lögreglumenn fyrir ökumenn til að hengja í baksýnisspegilinn.Hrefna Aradóttir hefur tálgað frá barnsaldri, lærði listina af afa sínum, og nú er þetta starfið hennar. Vinnustofan er í bílskúrnum. Mest tálgar hún jólasveina fyrir minjagripaverslanir en líka mikið eftir sérpöntunum, eins og styttur af fermingarbörnum. Fermingardrengurinn Hjálmar er með gítarinn sinn og fótboltastelpan Elínborg í liðsbúningum með númer tvö á bakinu. Fyrir brúðkaup tálgaði hún brúðhjónin og börnin þeirra þrjú.Í fyrra byrjaði hún svo að tálga Blönduóslögguna enda segir Hrefna fátt meira auglýsa Húnavatnssýslur heldur en löggan. Tréstytturnar eru hugsaðar til að hengja upp í baksýnisspegla. Betra sé að hafa lögguna með sér en á móti, segir Hrefna.Heimamenn tala um að andlitin á styttunum séu eins og andlit lögreglumannanna á Blönduósi. Hrefna segir að lögreglumennirnir tali um að þeir þekki sig en hún kveðst ekki vera að búa til ákveðin andlit. Það bara komi karakterar sem eru í spýtunni.Þetta urðum við auðvitað að kanna betur svo við skunduðum niður á lögreglustöð með listakonunni. Þar tók Vilhjálmur Stefánsson lögreglumaður á móti okkur. Hann kvaðst ekki í neinum vafa um að hann væri fyrirmyndin að löggunni á einni styttunni. Við erum alveg eins, þetta er ég, sagði hann og hló.Að öllu gamni slepptu þá eru lögreglumennirnir ánægðir með ef löggustytturnar minna menn á að aka ekki of greitt. Að menn virði umferðarreglurnar og komist heilu og höldnu á áfangastaði.
Mest lesið „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Innlent Verða bílveikari í rafbílum Innlent Drónamálið enn óupplýst: „Við erum heimskir nýgræðingar“ Erlent Holskefla í kortunum Innlent Kimmel snéri aftur, Trump til mikillar óánægju Erlent Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Erlent Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Sjá meira