Erlent

Óheilbrigðir lifnaðarhættir landlægir í Skotlandi

Ný rannsókn leiðir í ljós að óheilbrigðir lifnarðarhættir eru landlægir í Skotlandi.

Rannsóknin var gerð af vísindamönnum við háskólann í Glasgow. Með óheilbrigðum lífnaðarhátum er átt við tóbaksreykingar, áfengisdrykkju, lélegt matarræði, hreyfingarleysi og offitu.

Í ljós kom að 97% Skota glíma við að minnsta kosti einn eða fleiri af þessum löstum. Þar af glíma 55% Skota við þrjá eða fleiri og hjá 20% Skota koma allir lestirnir fimm við sögu.

Fjallað er um málið á BBC en þar kemur fram að rannsóknin náði til rúmlega 6.500 manns. Í niðurstöðum vísindamannanna segir að svo virðist sem skoska þjóðin hafi valið sér lífshættulega lifnaðarhætti.

Dr. David Conway, sem stjórnaði rannsókninni segir að niðurstöðurnar sýni að tveirþriðju hlutar þjóðarinnar glími við offituvandamál, svipað hlutfall hreyfi sig ekki nægilega mikið og að flestir Skotar búi við óheilbrigt mataræði.

Fram kemur að þetta séu svipaðar niðurstöður og fengust í samskonar könnum meðal Englendinga.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×