Innlent

Verði hluti af þjóðhagsspá

Bakki Lóðin við Bakka í Tjörneshreppi, þar sem stefnt er að álveri eða öðrum orkufrekum iðnaði.
Bakki Lóðin við Bakka í Tjörneshreppi, þar sem stefnt er að álveri eða öðrum orkufrekum iðnaði.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra býst við að tekið verði tillit til stórframkvæmda á Norðausturlandi við næstu endurskoðun þjóðhagsspár.

Endurskoðuð spá liggur ekki fyrir þetta ár. Þetta er í fyrsta skipti frá 2003 sem endurskoðuð spá er ekki gefin út í janúar.

„Ég trúi ekki öðru en að þær verði hluti af forsendum þjóðhagsspár við næstu endurskoðun,“ segir Katrín, spurð um stöðu verkefna á sviði orkufreks iðnaðar og raforkukerfis á Norðausturlandi, sem hún segir ganga vel. Unnið er að stofnun félags um fjármögnun orkuframkvæmda og leitað er að áhugasömum orkukaupendum. Stefnt er að því að semja við kaupendur um orkuna fyrir lok október í ár. Fyrir liggur áhugi Alcoa á að reisa 360.000 tonna álver við Bakka.

Fyrir helgi gaf iðnaðarráðuneytið frá sér yfirlýsingu um verkefni, sem standa eigi undir 400 milljarða fjárfestingu í orkufrekum iðnaði og raforkukerfinu fram til 2017. Þar var verkefna nyrðra ekki getið. Katrín segir að í yfirlýsingunni hafi aðeins verið gert ráð fyrir þeim raforkuframkvæmdum sem liggja til grundvallar núgildandi þjóðhagsspám. Þær framkvæmdir tengist allar álveri í Helguvík. - pg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×