Innlent

Leggur til uppsagnir og niðurskurð

Bæjarstjórnin ætlar að hækka leikskólagjöld um fimmtán prósent og leggja niður tómstundastyrki.
 fréttablaðið/gva
Bæjarstjórnin ætlar að hækka leikskólagjöld um fimmtán prósent og leggja niður tómstundastyrki. fréttablaðið/gva

Bæjarstjórn Álftaness fundaði seint í gærkvöldi um tillögur sínar til eftirlitsnefndar sveitarfélaganna, um hvernig ætti að mæta slæmri fjárhagsstöðu Álftaness.

Fundur stóð enn yfir þegar blaðið fór í prentun, en meðal þess sem átti að leggja til var að leggja niður stöður félagsmálastjóra, fræðslustjóra, leikskólafulltrúa, skipulagsfulltrúa og íþrótta- og tómstundafulltrúa bæjarins.

Kristinn Guðlaugsson, forseti bæjarstjórnar, staðfestir að skera eigi niður í rekstri sveitarfélagsins um sem nemur alls 13,5 prósentum. Stefnt sé að sex prósenta niðurgreiðslu í rekstri grunnskólans og hækka eigi leikskólagjöld um fimmtán prósent frá 1. mars.

Áætlun bæjarstjórnar miðast við að sveitarfélagið losni undan samningum, meðal annars við Eignarhaldsfélagið Fasteign um þrjátíu ára leigu á sundlaug og íþróttahúsi. Skuldbindingarnar eru metnar á fjóra milljarða króna en leigukostnaður að óbreyttu yrði um 200 milljónir á ári í þrjátíu ár.

Einnig losni Álftanes undan þjónustusamningum við Búmenn og Ris sem kosta munu 54 milljónir króna á ári í leigu um ókomin ár. Þá verði afborganir lækkaðar um rúmlega 200 milljónir á ári með öðrum skuldbreytingum næstu ár. Kristinn segir að þessar aðgerðir séu forsenda þess að af viðræðum um sameiningu við önnur sveitarfélög verði. - pg, kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×