Upp­gjörið: Valur - Grinda­vík 79-72 | Baráttuglaðir Vals­menn jöfnuðu ein­vígið

Siggeir Ævarsson skrifar
Kristó skilaði þéttri tvennu í kvöld, tólf stig og fjórtán fráköst.
Kristó skilaði þéttri tvennu í kvöld, tólf stig og fjórtán fráköst. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Það var boðið upp á ansi jafnan og framan af spennandi leik á Hlíðarenda í kvöld þar sem Valsmenn tóku á móti deildarmeisturum Grindavíkur en Grindavík vann fyrsta leik liðanna 82-81.

Pargo skoraði aðeins 10 stig að þessu sinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Heimamenn fóru aðeins betur af stað en Grindvíkingar voru að spila góða vörn sem færði þeim þægilegar sóknir í kjölfarið. Það var jafnt á öllum tölum eftir fyrsta leikhluta, 19-19.

Rétt fyrir lok leikhlutans urðu Valsmenn fyrir töluverðum skakkaföllum þegar Frank Aron Booker og Keyshawn Woods skullu saman hné í hné og Frank Aron lá sárþjáður eftir. Hann var að lokum studdur af velli og Valsmenn því án tveggja lykilmanna, en Lazar Nicolic meiddist í síðasta leik og var ekki með í kvöld.

Gestirnir fóru svo aðeins betur af stað í næsta leikhluta og leiddu 22-28 þegar Finnur Freyr tók sitt fyrsta leikhlé. Elsti leikmaður deildarinnar, Igor Maric, kom heldur betur sterkur inn af bekknum og setti fjóra þrista en þristarnir héldu Valsmönnum hreinlega inni í leiknum í fyrri hálfleik.

Igor Maric sýndi að flest er fertugum færtVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Valsmenn settu alls átta þrista í fyrri hálfleik með 44 prósent nýtingu, meðan að Grindvíkingar settu aðeins þrjá úr fimmtán skotum. Allt jafnt aftur í hálfleik, staðan 41-41. DeAndre Kane og Jordan Semple voru afar atkvæðamiklir hjá Grindavík í fyrri hálfleik með 15 og 14 stig, eða 29 af 41 stigi Grindavíkur.

Sóknarþurrð Grindvíkinga í seinni

Þriðji leikhlutinn spilaðist vel fyrir Valsmenn sem náðu upp átta stiga forskoti áður en Jóhann Þór tók sitt fyrsta leikhlé en það var ekkert að ganga upp hjá Grindvíkingum á þessum tímapunkti, staðan 54-46. Grindvíkingar náðu þó aðeins að hressa upp á sinn leik og skoruðu síðustu körfu fjórðungsins, staðan 60-57 fyrir lokaátökin.

Lawson var öflugur í kvöldVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Sóknarleikur Grindvíkinga var stirður í þriðja leikhluta en hann fraus hreinlega í þeim fjórða, aðeins þrjú stig komin á töfluna þegar rúmar fimm mínútur voru liðnar og staðan orðin 73-61. Það reyndist Grindvíkingum einfaldlega um megn þrátt fyrir að þeir næðu aðeins að klóra í bakkann undir lokin. Það var hreinlega eins og það væri lok á körfunni.

Barátta Valsmanna var sömuleiðis algjörlega til fyrirmyndar meðan Grindvíkingar voru meira að lulla í lága drifinu og þá þarf varla að spyrja að leikslokum.

Sanngjarn 79-72 sigur Vals niðurstaðan og einvígið orðið jafnt 1-1.

Þema leiksins

Þvæluþristar var þema leiksins í kvöld. Ótrúlega margir þristar sem rötuðu rétta leið upp úr algjörlega gölnum færum eða lengst utan af velli. 

Stjörnur og skúrkar

Kári Jónsson endaði stigahæstur Valsmanna með 16 stig eftir að hafa verið stigalaus í fyrri hálfleik. Callum Lawson skoraði sömuleiðis 16 stig.

Kristófer Acox skoraði 12 stig og bætti við 14 fráköstum, og gerði mjög vel að halda sér á vellinum eftir að hafa fengið sína þriðju villu. Hann var einnig með flestar stoðsendingar Valsmanna, fimm talsins.

Hjá Grindavík var DeAndre Kane stigahæstur með 22 stig og 16 stoðsendingar. Ólafur Ólafsson hrökk í gang undir lokin og skilaði 16 stigum í hús.

Kane skilaði sínuVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Dómarar

Kristinn Óskarsson, Gunnlaugur Briem og Jón Þór Eyþórsson dæmdu leikinn í kvöld og gerðu það ágætlega. Dæmdu grunsamlega oft skref, kannski innblásnir af umræðunni eftir leikinn í gær.

DómaratríóiðVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Stemming og umgjörð

Frábær umgjörð í Valsheimilinu í kvöld og stemmingin góð. Vel mætt í stúkuna og mikil gleði Valsmegin en hálf dapurt Grindavíkurmegin eftir því sem leið á leikinn.

Gleðin var við völd hjá Valsmönnum þegar leið á leikinnVísir/Guðmundur Þórlaugarson
Það dró heldur úr gleðinni hjá Grindvíkingum í stúkunni eftir því sem leið á leikinnVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Viðtöl

Fleiri viðtöl væntanleg

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira