Ríkisstyrkur fór víst í einkavæddar námsbrautir 1. september 2010 11:25 Keilir.
Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis ehf. Þar kemur meðal annars fram að Keilir hafi víst nýtt opinbert fé í aðrar námsbrautir en þær sem ríkið styrkti. Meðal þess sem féð fór í var flugnám skólans sem er algjörlega einkavætt. Í yfirlýsingu Ríkisendurskoðanda segir meðal annars orðrétt: „Á árunum 2008 og 2009 gerðu menntamálaráðuneyti, Háskóli Íslands og Keilir samninga um 235,6 m.kr. framlag ríkisins til frumgreinakennslu Keilis þessi ár. Af þeim verður ekki annað ráðið en að féð hafi eingöngu átt að renna til frumgreinakennslunnar. Athugun Ríkisendurskoðunar leiddi hins vegar í ljós að Keilir nýtti hluta þess í aðra starfsemi skólans og staðfesti framkvæmdastjóri Keilis það í bréfi til stofnunarinnar 16. ágúst 2010. Þar segir m.a. að hluti þess hafi verið notaður „í almennt starf skólans, þ.m.t. aðrar námsbrautir viðurkenndar. Má þar nefna ÍAK einkaþjálfara, frumkvöðlanám, orkuskóla, bóklegt atvinnuflug, flugumferðarstjórn, flugfreyjur, auk Háskólabrúar". Að mati Ríkisendurskoðunar felur þetta í sér skýlaust brot á fyrrnefndum samningum og hefur ráðuneytið lýst sig sammála þeirri túlkun." Hjálmar sagði í viðtali við Vísi í gær að það væri ekki rétt hjá Ríkisendurskoðun að það hefði verið misfarið með fé. Þá sagði Hjálmar að honum fyndist Ríkisendurskoðun skilgreina full þröngt hvert féð ætti að fara. Spurður í hvað það fór sagði hann að það hefði meðal annars farið í almenna starfsemi svo sem námsráðgjafa og skrifstofu. Þá sagði Hjálmar í viðtalinu að árlegur styrkur frá ríkinu, sem er 31 milljón á ári, rataði ekki í aðrar námsbrautir sem ekki eru styrktar af ríkinu. Nú segir Ríkisendurskoðun að þessi orð séu ekki sönn, heldur hafi féð sannarlega ratað í aðrar námsbrautir. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild.
Tengdar fréttir „Ríkisendurskoðun fór óvarlega í fyrirsagnirnar“ „Við urðum strax vör við það að nemendur og starfsfólk höfðu samband og óttuðust að hér væri allt á hausnum. Að sjálfsögðu er ekki svo og mér finnst Ríkisendurskoðun hafa farið óvarlega í fyrirsagnirnar sem höfðu ekki alltaf innistæðu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, en honum finnst framsetning skýrslu Ríkisendurskoðunar heldur hörð og ekki lýsa starfi skólans rétt. 31. ágúst 2010 15:10 Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir. 31. ágúst 2010 13:23 Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Fleiri fréttir Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Sjá meira
„Ríkisendurskoðun fór óvarlega í fyrirsagnirnar“ „Við urðum strax vör við það að nemendur og starfsfólk höfðu samband og óttuðust að hér væri allt á hausnum. Að sjálfsögðu er ekki svo og mér finnst Ríkisendurskoðun hafa farið óvarlega í fyrirsagnirnar sem höfðu ekki alltaf innistæðu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, en honum finnst framsetning skýrslu Ríkisendurskoðunar heldur hörð og ekki lýsa starfi skólans rétt. 31. ágúst 2010 15:10
Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir. 31. ágúst 2010 13:23