Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili 31. ágúst 2010 13:23 Keilir.
Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir. Að mati Ríkisendurskoðunar er því óvíst hvort fjárhagslegur grundvöllur sé fyrir rekstri skólans. Ríkisendurskoðun bendir jafnframt á að ríkisvaldinu sé ekki að lögum skylt að styðja einkaskóla á borð við Keili. Þeim beri sjálfum að tryggja eigið rekstraröryggi. Þá kemur ennfremur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að á árunum 2007-2010 fékk Keilir samtals 685,7 milljónir úr ríkissjóði. Helmingur fjárins átti að renna til svokallaðrar frumgreinakennslu sem hefur að markmiði að búa nemendur undir háskólanám. Sérstakir samningar voru gerðir um þau framlög milli menntamálaráðueytisins (nú mennta- og menningarmálaráðuneyti), Háskóla Íslands og Keilis. Í skýrslunni er gagnrýnt að Keilir hafi nýtt hluta þeirra til annarrar starfsemi en frumgreinakennslu. Ríkisendurskoðun telur brýnt að fjárveitingar ríkisins til skólans renni til þeirra verkefna sem um hefur verið samið. Þá kemur fram að Háskóli Íslands ber faglega ábyrgð á háskólanámi Keilis samkvæmt sérstökum samningi milli skólanna. Í nýjum verklagsreglum Háskóla Íslands kemur fram að honum er ekki heimilt að axla slíka faglega ábyrgð á námi innan annarra skóla nema þeir hafi hlotið viðurkenningu sem háskólar. Þetta skapar nokkra óvissu um háskólanám Keilis þar sem hann er ekki viðurkenndur háskóli. Samstarf Keilis við Háskóla Íslands kemur í veg fyrir að hann geti innheimt skólagjöld af nemendum í grunnnámi á háskólastigi. Því hefur skólinn farið þá leið að skilgreina grunnnám sem endurmenntun. Nýsamþykkt lög um opinbera háskóla girða fyrir þetta. Þar með getur Keilir ekki innheimt önnur gjöld í grunnnámi en skráningargjöld meðan á samstarfi hans við opinberan háskóla stendur.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira