„Ríkisendurskoðun fór óvarlega í fyrirsagnirnar“ 31. ágúst 2010 15:10 Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis. „
Við urðum strax vör við það að nemendur og starfsfólk höfðu samband og óttuðust að hér væri allt á hausnum. Að sjálfsögðu er ekki svo og mér finnst Ríkisendurskoðun hafa farið óvarlega í fyrirsagnirnar sem höfðu ekki alltaf innistæðu," segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins um viðbrögð við skýrslu Ríkisendurskoðunar, en honum finnst framsetning skýrslunnar heldur hörð og ekki lýsa starfi skólans rétt. Ríkisendurskoðandi birti skýrslu fyrr í dag um stöðu Keilis. Þar kom meðal annars fram að Ríkisendurskoðandi óttaðist að það væri ekki rekstrargrundvöllur fyrir Keili, sem bíður upp á fjölbreytt nám í Reykjanesbæ. „Sjö mánaða uppgjörið sýnir að skólinn sé kominn fyrir vind," segir Hjálmar en hann bendir á að vissulega hafi skólinn tapað fyrstu þrjú árin. Þetta ár hafi skólinn hinsvegar einsett sér að skila hagnaði og allt bendir til þess að svo muni verða. Því hafnar Hjálmar því að ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili. Á árunum 2007-2010 fékk Keilir samtals 685,7 milljónir króna úr ríkissjóði. Í skýrslunni kemur fram að um helmingur fjárins átti að renna til svokallaðrar frumgreinakennslu sem hefur að markmiði að búa nemendur undir háskólanám. Í skýrslunni er gagnrýnt að Keilir hafi nýtt hluta þeirra til annarrar starfsemi en frumgreinakennslu. Hjálmar segir það ekki þannig að það sé misfarið með fé. Skólinn er ríkisstyrktur að hluta. Að sögn Hjálmars finnst honum Ríkisendurskoðun skilgreina full þröngt hvert féð á að fara. Spurður í hvað það fór segir hann að það hafi meðal annars farið í almenna starfsemi svo sem námsráðgjafa og skrifstofu. Hann segir árlegan styrk frá ríkinu, sem er 31 milljón á ári, rati ekki í aðrar námsbrautir sem ekki eru styrktar af ríkinu. Í skýrslunni segir svo orðrétt: „Enn fremur þurfi mennta- og menningarmálaráðuneytið að efla bæði fjárhagslegt og faglegt eftirlit með einkaskólum sem það hefur samið við." „Það er lögð áhersla á gæðaeftirlit með náminu," segir Hjálmar og bendir á að það sé sífellt verkefni að stuðla að betra og öflugra námi. Spurður hvort skýrslan sé áfellisdómur yfir skólann segist Hjálmar ekki líta svo á. Hann segir skýrsluna í neikvæðum fyrirsagnastíl en þegar betur er skoðað er þar fátt sem setur almennilega út á skólann. Keilir stendur vel að sögn Hjálmars og mun verða betri. „Við kvörtum helst undan því að fá ekki nægt fé í skólann frá ríkinu," segir Hjálmar en Keilir nýtur ekki sambærilegs stuðnings og aðrir skóla á framhaldsstigi að hans sögn.Fái skólinn hinsvegar sama fé breytist staðan talsvert til hins betra, þá hún sé alls ekki slæm að mati Hjálmars.
Tengdar fréttir Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir. 31. ágúst 2010 13:23 Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent Fleiri fréttir Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Sjá meira
Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir. 31. ágúst 2010 13:23