Innlent

Olís dró hækkun til baka

Olílufélagið Olís dró í gærkvöldi til baka þriggja krónu hækkun á 95 oktana bensíni, eftir að hækkunin hafði staðið í sólarhring. Ekkert hinna félaganna hækkaði bensínverð í kjölfar hækkunar Olís í fyrradag, eins og algengt hefur þó verið að undanförnu.

Bensínlítrinn er því kominn niður í rúmar 196 krónur í sjálfsafgreiðslu hjá Olís, eins og hjá hinum félgöunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×