Meistaragráða felld úr gildi vegna ritstuldar 27. janúar 2010 05:45 Ágúst Einarsson. MYND/Haraldur
Meistaragráða nemanda sem útskrifaðist með lögfræðipróf frá Háskólanum á Bifröst sumarið 2008 hefur verið felld úr gildi þar sem nemandinn varð uppvís að ritstuldi í lokaritgerð. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, segir að vandlega hafi verið farið yfir málið, enda ritstuldur litinn afar alvarlegum augum innan háskólans. Sérfræðingar skólans og sérfræðingur í öðrum íslenskum háskóla gerðu úttekt á umræddri ritgerð og þeim ritum sem hún þótti líkjast. Niðurstaðan var að óumdeilanlega væri um ritstuld að ræða. „Við tökum hart á þessu máli. Háskólinn er búinn að endurkalla einkunn nemandans fyrir þessa meistararitgerð. Þar með fellur meistaragráðan úr gildi," segir Ágúst. „Ritstuldarmál eru farin að verða algengari í háskólum, bæði hér á landi og erlendis, með aukinni tækni." Þar sem nokkuð er liðið frá því að nemandinn útskrifaðist er hann ekki lengur nemandi við skólann, og fær þar af leiðandi að óbreyttu ekki að skila nýrri ritgerð. Ágúst segir að berist skólanum erindi frá nemandanum vegna málsins verði það skoðað, og vill ekki tjá sig um hvort honum verði heimilað að sækja um skólavist að nýju og skila nýrri ritgerð. Ágúst segir það persónulegt áfall fyrir nemandann að verða uppvís að ritstuldi, en vill ekki leggja mat á hvaða áhrif það mun hafa fyrir feril lögfræðings að vera með slíkt á bakinu. Nemandinn hefur samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins ávallt neitað því að hafa stundað ritstuld. Ágúst segir að nemandinn hafi haft tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri á öllum stigum málsins, en niðurstaða háskólans sé skýr. brjann@frettabladid.is
Tengdar fréttir Segist ekki hafa stundað ritstuld „Ég hef ekki brotið neitt af mér,“ segir Jón Halldór Guðmundsson. Meistaragráða hans í lögfræði hefur nú verið felld úr gildi vegna ritstuldar. Hann segist vera að skoða málið. 27. janúar 2010 06:00 Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira
Segist ekki hafa stundað ritstuld „Ég hef ekki brotið neitt af mér,“ segir Jón Halldór Guðmundsson. Meistaragráða hans í lögfræði hefur nú verið felld úr gildi vegna ritstuldar. Hann segist vera að skoða málið. 27. janúar 2010 06:00