Námuverkamenn í Chile fá sálfræðiaðstoð í gegnum talstöð Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 28. ágúst 2010 13:01 Verið er að reyna að bora göng í áttina að mönnunum. Mynd/ afp.
Fimm námuverkamenn í prísundinni í Chile munu njóta sálfræðimeðferðar í gegnum talstöð. Mennirnir eru farnir að sýna merki um þunglyndi. Mennirnir fimm eru í hópi þrjátíu og þriggja námuverkamanna sem festist á 700 metra dýpi þegar námagöng féllu saman fyrir um þremur vikum síðan. Mennirnir fundust 22. ágúst síðastliðinn, en síðan þá hafa öll samskipti þeirra við umheiminn verið um örmjó göng sem boruð voru til þeirra. Verið er að setja saman þungavinnuvélar frá Spáni og Ástralíu sem koma til með að bora flóttagöng til mannanna, en talið er að mennirnir gætu losnað úr göngunum fyrir jól. Yfirvöld hafa lýst miklum áhyggjum af geðheilsu mannanna, en breska ríkisútvarpið hefur eftir heilbrigðisráðherra Chile að fimm þeirra sýni merki um þunglyndi. Þeir borði illa og hafi neitað að koma fram á myndbandi sem námamennirnir gerðu fyrir fjölskyldur sínar. Ráðherrann segir að sálfræðingar muni reyna að veita mönnunum meðferð frá yfirborðinu í gegnum talstöðvakerfi. Þá er unnið að því að útbúa æfinga- og tómstundadagskrá fyrir alla mennina í prísundinni, svo þeir geti haldið sér í formi jafnt líkamlega sem andlega, en þeim er einnig sagt að gera mun á nóttu og degi þó stöðugt myrkur ríki í göngunum. Von er á læknum frá geimferðastofnuninni NASA í næstu viku til aðstoðar heilbrigðisstarfsfólki á staðnum, en þeir eru sérfræðingar í því að huga að heilsu geimfara í þröngu rými um langa hríð.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira