Innlent

Kallar skilanefndir fyrir

Efnahags- og skattanefnd Alþingis hyggst kalla skilanefndir bankanna til fundar við sig á föstudag og ræða samskipti þeirra við skattrannsóknarstjóra.

Fram er komið í fjölmiðlum að engin mál hafi verið send til skattrannsóknar að frumkvæði skilanefndanna. Þetta mál var rætt við skattrannsóknarstjóra á fundi efnahags- og skattanefndar í gærmorgun. Helgi Hjörvar, formaður nefndarinnar, staðfesti við Fréttablaðið að til stæði að nefndin fundaði með skilanefndarfulltrúum á föstudag. - pg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×