Innlent

Segir ákæruvaldið brjóta lög um meðferð sakamála

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson.

Lögmaður Ólafs Gottskálkssonar, sem ákærður hefur verið fyrir rán í Reykjanesbæ, reiknar með því að farið verði fram á opinbera rannsókn til þess að komast að því hvernig Fréttablaðið gat birt frétt um ákæruna gegn Ólafi fimm dögum áður en hún var birt honum formlega. Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmaður Ólafs segir um klárt brot á lögum um meðferð sakamála að ræða.

Þann 16. október síðastliðinn birti Fréttablaðið frétt um málið og segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður Ólafs, að miðað við nákvæmni fréttarinnar sé ómögulegt annað en að blaðið hafi haft ákæruna undir höndum eða að efni hennar hafi verið lesið fyrir blaðamann. Að sögn Vilhjálms var Ólafur, sem er fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, staddur í Noregi á þessum tíma og frétti hann af ákærunni í gegnum ættingja sína sem hringdu í hann og létu hann vita. Ákæran var hinsvegar ekki birt Ólafi fyrr en 21. október og er það staðfest af birtingarmönnum þar ytra. Ákæran er gefin út af Ríkissaksóknara og undirrituð af Kolbrúnu Sævarsdóttur saksóknara.

Um klárt brot að ræða

Vilhjálmur segir að út frá 5. málsgrein í 156. grein laga um meðferð sakamála, sem tóku gildi 1. janúar í fyrra, megi gagnálykta að óheimilt sé að afhenda eintak af ákæru til óviðkomandi fyrr en þremur dögum eftir að ákæran hefur verið birt ákærða. Vilhjálmur segir að í greinargerð með lögunum séu færð rök fyrir þessu og því um klárt brot á lögunum að ræða að hans mati.

Vilhjálmur bendir á að einu aðilarnir sem voru með ákæruna á þeim tímapunkti sem fréttin var skrifuð hafi verið ákæruvaldið og Héraðsdómur Reykjaness og segist hann tilbúinn til að fullyrða að lekinn komi ekki frá héraðsdómi. „Ég reikna því með því að við förum fram á opinbera rannsókn á málinu hjá Ríkissaksóknara," segir Vilhjálmur. Hann segir það síðan verða að koma ljós hvernig Ríkissaksóknari taki á málinu og bætir við að eftir atvikum verði mögulega höfðað skaðabótamál gegn íslenska ríkinu.

Kolbrún krefst þess að Stöð 2 verði sektuð á grundvelli sömu laga

Úrræðin sem tæk eru í málum sem þessum eru réttarfarssekt, opinber sannsókn vegna brots aðila í opinberu starfi eða skaðabótamál gegn íslenska ríkinu.

Þess ber að geta að Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari hefur farið fram á héraðsdómur leggi réttarfarssekt á tvo fréttamenn Stöðvar 2 vegna upplýsinga sem birtar voru úr lokuðu þinghaldi á dögunum. Mál sitt byggir Kolbrún á 11. grein sömu laga.




Tengdar fréttir

Markvörður ákærður fyrir rán

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Ólafi Gottskálkssyni, fyrrverandi landsliðsmarkverði í knattspyrnu. Ólafur er ákærður fyrir húsbrot og rán í félagi við annan yngri mann.

Vildi heimildarmann gegn kröfu um fésekt

Ríkissaksóknari vill að Héraðsdómur Reykjaness leggi réttarfarssekt á tvo fréttamenn Stöðvar 2 vegna upplýsinga sem birtar voru úr lokuðu þinghaldi um meint mansal á litháískri stúlku til Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×