Innlent

Gífurlegur fjöldi kvenna í Kvennaathvarfinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Alls dvöldu 118 og 60 börn í Kvennaathvarfinu í fyrra. Einungis einu sinni áður hafa verið skráðar fleiri konur í athvarfið. Aðsókn var mikil í Kvennaathvarfið á síðasta ári og einungis einu sinni í 27 ára sögu athvarfsins hafa verið skráðar fleiri komur. Veitt voru tæplega 500 ráðgjafar- og stuðningsviðtöl við konur sem ekki komu í dvöl. Það sem af er árinu hefur aðsókn í viðtöl enn stóraukist.

Samkvæmt tilkynningu frá Kvennaathvarfinu hurfu erlendar konur þaðan í aðdraganda bankahrunsins. Um mitt síðasta ár fór þeim síðan að fjölga aftur. Árið 2009 voru konur af erlendum uppruna 37% dvalarkvenna, en höfðu verið rétt um helmingur dvalarkvenna árin á undan. Fjórðungur ofbeldismannanna eru af erlendum uppruna. Fækkun erlendra kvenna mánuðina eftir bankahrun má líklega skýra með auknu atvinnuleysi og óöryggi í samfélaginu.



Um 40% fóru í sömu aðstæður


Um 40% dvalarkvenna fóru aftur heim í sömu aðstæður og þær komu úr en sá hópur hefur sennilega aldrei verið jafn stór. Að auki luku 20% dvöl án þess að ljóst væri hvert þær færu sem er talsvert hærra hlutfall en undanfarin ár. Reynslan hefur sýnt okkur að talsverður hluti þess hóps fer aftur heim til ofbeldismannsins. Því má reikna með að a.m.k. helmingur dvalarkvenna hafi farið aftur heim í óbreyttar aðstæður og vekur það áhyggjur.

Konur dvöldu í athvarfinu frá einum degi og upp í 73 daga, að meðaltali dvöldu konur 11 daga í senn en það er 7 dögum styttri meðaldvöl en árið á undan. Helst það í hendur við þá staðreynd að konur fóru í auknu mæli heim aftur í óbreyttar aðstæður en þær sem fara heim í breyttar aðstæður eða út á leigumarkaðinn dvelja að jafnaði lengur.



Andlegt ofbeldi ástæða dvalar í 80% tilfella


Rúmlega 80% kvenna nefna andlegt ofbeldi meðal annar sem orsök dvalar og 55% líkamlegt ofbeldi. Um 30% nefna ofsóknir eða morðhótanir og er þá oftast um að ræða ofsóknir af hálfu fyrrverandi eiginmanns eða sambýlismanns eða barnsföður. 20% voru með líkamlega áverka við komu en nærri helmingi fleiri höfðu hlotið líkamlega áverka áður. Hér að neðan má sjá upplýsingar um líðan kvenna vikurnar fyrir komu í athvarfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×