Innlent

Leita vitna vegna líkamsárásar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan. Mynd/ Pétur.
Lögreglan. Mynd/ Pétur.
Lögreglan á Selfossi leitar vitna að líkamsárás á skemmtistaðnum 800 Bar á Selfossi um klukkan þrjú aðafaranótt sunnudagsins 9. janúar síðastliðinn.

Árásin varð með þeim hætti að maður sló annan mann hnefahögg í andlitið. Sá sem varð fyrir árásinni var nokkuð ölvaður og gat ekki lýst atviknu náið né árásarmanninum að öðru leyti en því að hann hefði verið í hvítum bol. Árásarþolinn var í gallabuxum, blárri skyrtu og í svörtum jakka.

Lögreglan biður þá sem hafa orðið vitni að atvikinu að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×