Fækka má slysum með nýjum búnaði 10. apríl 2010 05:00 Páll Halldór Halldórsson aksturskappi sýnir hvernig stöðugleikastýring líkt og límir nýjan Volkswagen golf við götuna þótt hart sé ekið og aðstæður erfiðar. Fréttablaðið/GVA
Væri bílafloti landsmanna allur búinn nýjasta öryggisbúnaði mætti mögulega fækka umferðarslysum um ríflega þúsund á ári hverju. Þetta er mat Bílgreinasambandsins og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Félögin stóðu fyrir skömmu fyrir sýnikennslu þar sem sýndur var munur á aksturshæfni tíu ára gamals bíls og nýs bíls sömu tegundar. Sá eldri var bara búinn ABS-bremsum, en hinn nýjustu tegund stöðugleikastýringar þar sem tölvur stýra hemlun á hverju hjóli fyrir sig. Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður FÍB, segir mikið unnið með nýjasta öryggisbúnaði. Þannig safni til að mynda tölvur í loftpúðum og hemlabúnaði gögnum síðustu andartökin fyrir óhapp. „Þetta er eins og pínulítill svartur kassi,“ segir hann. Þá hafi tölvurnar sem stýri loftpúðum jafnvel fengið boð frá tölvunum í hemlunum um að eitthvað hafi farið úrskeiðis sekúndubrotin fyrir óhapp. Ólafur segir að á malarvegum geti þó skapast aðstæður þar sem reyni á stöðugleikastýringuna, en tæknin hafi verið þróuð svo að hún gefst æ betur við slíkar aðstæður. „Kostirnir eru fleiri en gallarnir, sérstaklega fyrir óvant fólk,“ segir hann og telur að í langflestum tilvikum sé stýringin til bóta á malarvegum og hjálpi til. „En menn sem vilja láta bílinn skrika til í beygjum hata þetta.“ FÍB og Bílgreinasambandið vísa til erlendra rannsókna á notkun stöðugleikastýringar sem benda til þess að stýringin minnki líkur á óhappi um 15 prósent. „Meðalfjöldi umferðarslysa hér á landi síðustu fimm árin er 7.264 á ári. Varfærin áætlun, sem miðar einungis við 15 prósenta fækkun á slysum, þýðir að slysum gæti fækkað hér á landi um rúmlega 1.000 á ári ef allir bílar væru búnir nýjasta öryggisbúnaði,“ segir í tilkynningu samtakanna. - óká
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent