„Skaðleg stefna ríkisstjórnar í sjávarútvegsmálum“ 4. nóvember 2010 13:01 Elliði Vignisson segir hótanir ríkisstjórnarinnar um fyrningu vera skaðlegar byggðum landsins
Bæjarráð Vestmannaeyja sér sig knúið til að gera ráð fyrir 15 prósenta samdrætti í áætluðum útvarstekjum. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir þar hafa ráðið för sú pólitíska óvissa sem nú ríkir og skaðleg stefna ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. „Seinustu ár hefur rekstur Vestmannayjabæjar gengið nokkuð vel. Þar hefur tvennt ráðið mestu. Annarsvegar sú staðreynd að Vestmannaeyjabær hélt að sér höndum í þenslunni og nýtti góðærið til að greiða niður lán. Vestmannaeyjabær hefur nú greitt um 65% af lánum sínum á þremur árum og fer því skuldlétt inn í erfiðan tíma.," segir Elliði. Hann telur ekki minnu skipta að staða sjávarútvegsins hafi verið sterk og útflutningur styrkst vegna gengisþróunar. „Nú horfir hinsvegar svo við að pólitísk óvissa og skaðleg stefna ríkisstjórnar í sjávarútvegsmálum mun að öllu óbreyttu draga mjög úr sóknarfærum sjávarútvegsins. Hótun um eignaupptöku verður til þess að fyrirtæki halda að sér höndum og bætast þar með í hóp annarra atvinnugreina sem frjósa föst í hinu pólitíska frosti. Með hótunum um fyrningu og öðrum skaðlegum leiðum beinir ríkisstjórnin höfuðborgarkreppunni á landsbyggðina," segir hann. Elliða þykir sérstalega slæmt til þess að vita að mesti skaðinn fyrir Vestmannaeyjar og aðrar sjávarbyggðir í efnahagsþrengingunum sé til kominn vegna pólitískra ákvarðana sem hægt er að komast hjá. „Það verður að viðurkennast að við í sjávarbyggðunum eigum bágt með að skilja afhverju ríkisstjórn sér núverandi ástand æskilegt til að ráðast til atlögu við arðbæra atvinnugrein. Við viljum auðvitað hvetja alþingismeanna og ríkisstjórn alla til að víkja deilum um grundvallar atvinnuveginn til hliðar á meðan landið vinnur sig úr hinum bráða efnahagslega vanda. Næg eru deiluefnin þótt einhverju sé hlíft. Kvótakerfið er sannarlega ekki fullkomið og það bæði má og þarf að breita því með hagsmuni íbúa í sjávarbyggðum í huga," segir Elliði. „Núverandi efnahagsástandástand og pólitísk sundrun í landinu er hinsvegar ekki rétti tíminn til þess. Með því fá gefa sjávarútvegnum starfsfrið fá Íslendingar allir betur nýtt þau miklu tækifæri sem fylgja þjóðarauðlyndinni öllum til velmegunar," segir hann.
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Erlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Sjá meira