Innlent

Á annan tug flóttamanna frá Haítí hugsanlega á leiðinni til Íslands

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, lagði fram erindi á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem skoðað verður að beita áður óþekktu ákvæði í útlendingalögum til þess að rýmka fyrir komu flóttamanna frá Haítí hingað til lands.

Alls hafa á annan tug fyrirspurna borist ráðuneytinu frá ríkisborgurum á Íslandi sem hefur ýmis tengsl við einstaklinga á Haítí þar sem gríðarlega öflugur jarðskjálfti reið yfir fyrir hálfum mánuði síðan.

Að sögn Rögnu þá hefur ríkisstjórn falið Flóttamannanefnd að gera tafarlaust tillögu um það hvort hægt sé að beita ákvæði um fjöldaflótta til þess að hægt verði að hleypa flóttamönnunum frá Haítí til landsins.

Þar sem fjölskyldutengsl flóttamannanna eru misjöfn við íbúa hér á landi þá falla þau ekki undir svo kallað fjölskyldusameiningarákvæði.

Í flestum tilvikum er um að ræða tengda aðila eða ættingja sem ekki teljast til nánustu aðstandenda í skilningi útlendingalaga, það er, eru hvorki maki, sambúðarmaki og samvistarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára á hans framfæri og í hans forsjá, ættmenni hans eða maki í beinan legg eldri en 66 ára og á þeirra framfæri.

Því er ekki lagaheimild til þess að veita þessum einstaklingum dvalarleyfi sem aðstandendur.

Í útlendingalögunum er að finna ákvæði um svokallaða sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta .

Í ákvæðinu er gert ráð fyrir að ráðherra geti tekið ákvörðun um að beita ákvæðum greinarinnar sem fela í sér heimild til að veita dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Gert er ráð fyrir að þessi heimild verði tímabundin og standi þar til aðstæður breytast í viðkomandi ríki.

Ríkisstjórnin óskaði þess vegna eftir því við Flóttamannaefnd að hún geri tafarlaust tillögu til stjórnvalda um hvort tilefni sé til beitingar lagagreinar um fjöldaflótta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×