Á annan tug flóttamanna frá Haítí hugsanlega á leiðinni til Íslands 26. janúar 2010 16:02
Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, lagði fram erindi á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem skoðað verður að beita áður óþekktu ákvæði í útlendingalögum til þess að rýmka fyrir komu flóttamanna frá Haítí hingað til lands. Alls hafa á annan tug fyrirspurna borist ráðuneytinu frá ríkisborgurum á Íslandi sem hefur ýmis tengsl við einstaklinga á Haítí þar sem gríðarlega öflugur jarðskjálfti reið yfir fyrir hálfum mánuði síðan. Að sögn Rögnu þá hefur ríkisstjórn falið Flóttamannanefnd að gera tafarlaust tillögu um það hvort hægt sé að beita ákvæði um fjöldaflótta til þess að hægt verði að hleypa flóttamönnunum frá Haítí til landsins. Þar sem fjölskyldutengsl flóttamannanna eru misjöfn við íbúa hér á landi þá falla þau ekki undir svo kallað fjölskyldusameiningarákvæði. Í flestum tilvikum er um að ræða tengda aðila eða ættingja sem ekki teljast til nánustu aðstandenda í skilningi útlendingalaga, það er, eru hvorki maki, sambúðarmaki og samvistarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára á hans framfæri og í hans forsjá, ættmenni hans eða maki í beinan legg eldri en 66 ára og á þeirra framfæri. Því er ekki lagaheimild til þess að veita þessum einstaklingum dvalarleyfi sem aðstandendur. Í útlendingalögunum er að finna ákvæði um svokallaða sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta . Í ákvæðinu er gert ráð fyrir að ráðherra geti tekið ákvörðun um að beita ákvæðum greinarinnar sem fela í sér heimild til að veita dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Gert er ráð fyrir að þessi heimild verði tímabundin og standi þar til aðstæður breytast í viðkomandi ríki. Ríkisstjórnin óskaði þess vegna eftir því við Flóttamannaefnd að hún geri tafarlaust tillögu til stjórnvalda um hvort tilefni sé til beitingar lagagreinar um fjöldaflótta.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira