Erlent

Illur ormur ógnar Facebook

Óli Tynes skrifar
Passaðu þig á orminum.
Passaðu þig á orminum.

Margir Danir hafa fengið hinn illa orm í heimsókn á Facebook síðu sína að sögn dagblaðsins BT.

Ormurinn er orðsending sem yfirtekur síðuna eitt augnablik og setur þar inn ruslpóst sem sendir orminn áfram til vina þinna.

BT segir að orðsendingin sé yfirleitt sú sama: „I thought this survey stuff was GARBAGE but I just went on a shopping spree at walmart thanks to FB."

Ekki klikka á þetta ef þú sérð það á þinni síðu. Orms-höfundarnir hafa einnig fundið út hvernig þeir geta fengið orminn til að senda einkaskilaboð til allra vina þinna.

Eftir því sem best er vitað hefur ormurinn ekki borið með sér neinn vírus. Hinsvegar leiðir hann þig inn á síðu þar sem þú ert beðinn um að fylla út eyðublað með persónulegum upplýsingum.

Ekki gera það. Hentu kvikindinu um leið og þú sérð það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×