Útlimir teknir af án svæfinga 20. júlí 2010 03:45 Kim Jong-Il
Læknar í Norður-Kóreu neyðast til þess að fjarlægja útlimi fólks án þess að það fái svæfingu og þurfa að vinna við kertaljós án nauðsynlegra lyfja, hita og rafmagns. Þetta segir í skýrslu Amnesty International um ástand heilbrigðiskerfisins. Skýrslan byggist á viðtölum við rúmlega fjörutíu Norður-Kóreubúa sem hafa flúið til nágrannalandsins Suður-Kóreu. Einnig voru tekin viðtöl við forsvarsmenn stofnana og heilbrigðisstarfsfólks sem hefur unnið með N-Kóreumönnum. Niðurstaðan er sú að heilbrigðiskerfið sé í rúst. Heilbrigðiskerfi landsins hefur farið hnignandi undanfarin ár, þótt yfirvöld í landinu segist veita öllum borgurum sínum ókeypis heilbrigðisþjónustu. Í viðtali við 24 ára mann er því lýst hvernig fimm manns hafi haldið honum niðri á meðan verið var að fjarlægja fót hans fyrir neðan hné. Í skýrslunni segir einnig að sjúklingar þurfi að borga læknum í peningum, sígarettum eða áfengi til þess að fá aðhlynningu. Þeir sem ekki eigi peninga fari því ekki á sjúkrahús. Læknar starfa oft launalaust og hafa lítinn aðgang að lyfjum. Þá þurfa þeir oft að margnýta einnota vörur. - þeb
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira