Landgræðslunni óheimilt að eyða lúpínu í Þórsmörk 9. ágúst 2010 12:43 Mynd/Valgarður Gíslason
Skógræktin neitaði Landgræðslunni um heimild til að eyða lúpínu í Þórsmörk í ár. Landgræðslan segist hafa fengið neitun þrátt fyrir skýra stefnu umhverfisráðuneytsins um að lúpínu skuli eyða þar sem hún sé talin óæskileg. Sviðsstjóri hjá Skógræktinni segir að lúpína í Þórsmörk, sé ekki meðal svæða sem nefnd séu í stefnumörkun ráðuneytisins. Við greindum frá því fyrir helgi að Skógræktin teldi lúpínueyðingu með plöntueitrinu Roundup, hefði algjörlega misheppnast í Þórsmörk, árin 2007 til 2009. Allur gróður sem fyrir eitrinu varð, hefði drepist, en lúpínan svo aftur skotið upp kollinum. Landgræðslan fullyrðir í tilkynningu að tilraunir með þessa aðferð til að eyða lúpínu hafi heppnast vel í Gunnarsholti. Þar hafi lúpína horfið og fjölbreyttur gróður komið í staðinn. Reyndar hafi stöku lúpína skotið sér upp. Umhverfisráðuneytið hefur markað stefnu um að fjarlægja lúpínu af stöðum þar sem hún er ekki talin æskileg, þar á meðal Þórsmerkursvæðinu, segir á vef Landgræðslunnar. Verði ekkert að gert þá muni hún breiðast út yfir afar stór svæði í Þórsmörkinni. Verði ekkert að gert verði lúpína alls ráðandi á hluta af Rananum og jökulaurunum framan við Húsadal og berast síðan niður alla Markarfljótsaura. Landgræðslan telji því brýnt að koma í veg fyrir þetta. Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri hjá Skógræktinni, er á öðru máli. „Lúpínan í Þórsmörk gerir miklu meiri gagn heldur en skaða. Hún skaðar ekki landslagið þarna og hún er ekki að fara inn í gamalgróna birkiskóga. Þvert á móti er lúpínan að hjálpa ungu birki til að komast á legg og klæða landið hraðar en ella. Hitt er að samkvæmt skýrslu, sem skrifuð var af Náttúrufræðistofnun og Landgræðslunni í vetur og skilað til umhverfisráðherra, var forgangslisti yfir þau svæði þar sem eyða á lúpínu og Þórsmörk er ekki á þessum lista. Þess vegna skiljum við ekki hvers vegna Landgræðslan er að leggja áherslu á að eyða lúpínu í Þórmörk. Þröstur segir eigi að eyða lúpínu þurfi að skoða hvert tilvik fyrir sig áður en farið er í dýrar aðgerðir. „En ekki taka almennar ákvarðanir sem ná yfir alla línuna. Lúpínan er eins og aðrir hlutir. Það eru bæði jákvæðar og neikvæðar á henni og það þarf að meta það í hverju tilviki fyrir sig."
Tengdar fréttir Tilraun til að eyða lúpínu mistókst Tilraun til að eyða lúpínu í Þórsmörk, með illgresiseitrinu Roundup, á árinum 2007-9 mistókst, segir skógrækt ríkisins. Greint er frá því á heimasíðu skógræktarinnar að eitrunin hafi eytt öllum öðrum gróðri en lúpínan hafi 6. ágúst 2010 15:07 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira
Tilraun til að eyða lúpínu mistókst Tilraun til að eyða lúpínu í Þórsmörk, með illgresiseitrinu Roundup, á árinum 2007-9 mistókst, segir skógrækt ríkisins. Greint er frá því á heimasíðu skógræktarinnar að eitrunin hafi eytt öllum öðrum gróðri en lúpínan hafi 6. ágúst 2010 15:07