„Mottu-merki“ seld á kjörstað 5. mars 2010 17:43 „
Mottu-mars," mánaðarlangt átak Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein hefur farið vel af stað en fjölmargir karlmenn hafa sýnt átakinu stuðning með því að safna yfirvaraskeggi og skrá sig á vefsíðu átaksins. Á morgun verður þungamiðja í átakinu þegar skeggnælur, barmmerki í líki yfirvararskeggs, verða seldar við kjörstaði um land allt og verður öllum ágóða af söfnunarstarfi átaksins varið til rannsókna, fræðslu, ráðgjafar og stuðnings við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra. „Það var nú tilviljun ein sem réði því að sala nælunnar fer fram á kjördag en fyrst það atvikaðist svo ákváðum við að nýta okkur það til að ná til almennings með ósk um stuðning," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Minni lífslíkur hjá körlum Yfir 700 karlar greinast árlega með krabbamein á Íslandi en lífslíkur þeirra eru lakari en hjá íslenskum konum. „Krabbamein hjá körlum eru oft lengra gengin við greiningu en hjá konum en því fyrr sem gripið er til aðgerða gegn sjúkdómnum þeim mun betri eru batahorfur. Því er nauðsynlegt að karlar geri sér grein fyrir helstu einkennum krabbameins og leiti sér læknisaðstoðar verði þeir varir við þau," segir Guðrún. „Batahorfur þeirra sem greinast með krabbamein hér á landi eru almennt góðar og hafa batnað mjög en brýnt er að greina meinin snemma. Því þurfa allir að þekkja einkennin og leita sér aðstoðar ef þörf er á." Forstjóri Krabbameinsfélagsins minnti einnig á mikilvægi forvarna í baráttunni við krabbamein en rannsóknir sýna að hægt er að koma í veg fyrir eitt af hverjum þremur krabbameinstilfellum með forvörnum og lífstíl eins og að borða hollan mat, stunda líkamsrækt reglulega, stilla drykkju og sólböðum í hóf og halda sig alveg frá reykingum!
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Sjá meira