Hafa lært á lífsklukkuna 28. júní 2010 02:00 Konur geta í framtíðinni stillt saman áætlanir sínar um barneignir, nám og vinnu af töluverðri nákvæmni. nordicphotos/getty
Vísindamenn telja að einfalt blóðpróf geti í framtíðinni spáð fyrir um hvenær breytingaskeið kvenna hefst. Telja þeir að konur geti fengið þessar upplýsingar við ungan aldur og því auðveldað þeim að skipuleggja líf sitt á nýjan hátt með tilliti til barneigna. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem verður kynnt á læknaráðstefnu í Róm í dag. Íranskir sérfræðingar halda þar fram að frumniðurstöður þeirra bendi eindregið í þessa átt. Prófið spáir ekki fyrir um hvenær konur verða ófrjóar, sem oftast er um áratug áður en breytingaskeið hefst, heldur er byggt á vitneskju um upphaf breytingaaldurs. Sérstaklega er þetta talið gagnlegt fyrir þann hóp kvenna þar sem breytingaskeiðið hefst snemma; eða á fertugsaldri. Íranarnir rannsökuðu blóðsýni úr 266 konum frá tvítugu til fertugs. Þeir mældu hormónamagn þeirra sem segir til um hversu mörg egg eru eftir í líkama þeirra og var konunum fylgt eftir í sex ár. Af 63 konum í þeim hópi skeikaði aldrei meira en um fjóra mánuði á milli spár vísindamanna og upphafs tíðahvarfa þeirra. Efasemdir hafa vissulega komið upp um áreiðanleika blóðprófs í þessum tilgangi. Telja læknar og sérfræðingar í frjósemi kvenna líklegra að nokkur próf yfir ævina þurfi til. Eins að rannsaka þurfi þúsundir kvenna áður en niðurstaðan verður staðfest. - shá
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira