Þakhluti á höll Nerós hrundi í dag Óli Tynes skrifar 30. mars 2010 15:47 Slökkviliðsmenn leita í þakrústunum. Í fjarska má sjá hringleikahúsið Coloseum. Mynd/AP
Stór hluti af þakinu á hinni Gullnu höll Nerós í Róm hrundi í dag. Ekki er vitað til þess að neinn hafi orðið þar undir, en slökkviliðsmenn hafa girt svæðið af og eru að leita í rústunum. Neró byggði þessa höll á fyrstu öld eftir Krist og eftir brunann mikla í Róm. Margir sagnfræðingar telja að Neró hafi leyft eldunum að geisa til þess einmitt að fá pláss fyrir höllina. Hún liggur að hluta til undir og inn í fjórum af hinum sjö hæðum Rómar. Keisarinn naut hallarinnar þó ekki lengi því hann framdi sjálfsmorð árið 68 eftir Krist. Á næsta áratug á eftir voru styttur, marmari, eðalsteinar og fílabein fjarlægt úr höllinni. Það var svo fyllt upp í hana að mestu og byggingar reistar ofan á henni meðal annars hin miklu baðhús Caracallas. Féll í gleymsku Höllin féll svo í gleymsku og fannst ekki aftur fyrr en á fimmtándu öld. Veggir hennar voru skreyttir stórkostlegum freskum og Meistararnir Rafael og Michelangelo dáðust að listaverkunum á sinni tíð. Þeir ristu báðir nöfn sín í veggina. Undanfarin ár hefur hún verið með mest sóttu ferðamannastöðum í Róm. Það hefur þó tíðum þurft að loka henni vegna viðgerða þar sem vatn hefur síast niður í hana. Undanfarið hefur einmitt verið mjög rigningasamt í Róm.
Mest lesið Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Innlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Innlent „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Innlent Fleiri fréttir Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Sjá meira