Byr sakar MP-banka um þjófnað 9. júní 2010 20:04 Margeiri Pétursyni, stjórnarformanni MP-banka, er stefnt fyrir hönd bankans en hann neitar sök í málinu.
Byr sparisjóður sakar MP banka um að hafa stolið ríflega 300 milljónum króna vegna tveggja og hálfs milljarðs króna kúluláns til félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, segir í frétt RÚV. Sparisjóðurinn sakar bankann um að hafa stolið upphæðinni eftir að hafa selt sameiginlegt veð fyrir láninu. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudaginn. Í desember 2006 veitti Sparisjóður Vélstjóra einkahlutafélaginu Hansa tveggja og hálfs milljarða króna kúlulán. Eigandi Hansa var Björgólfur Guðmundsson, en það átti meðal annars enska knattspyrnufélagið West Ham. Þegar Sparisjóður Vélstjóra sameinaðist Byr í desember 2006, fór lánið þangað. Síðar í mánuðinum gerðu Byr og MP-banki með sér svokallaðan aðildarsamning þar sem bankinn eignaðist 40% í lánasamningnum. Helstu veð Hansa fyrir kúluláninu voru hlutabréf í Straumi-Burðarás og Landsbankanum. Þegar hlutabréfaverð fór lækkandi á vormánuðum 2008 lagði Hansa fram frekari veð í Landsbankanum, og greiddi þar að auki 275 milljónir króna upp í lánið til að koma tryggingarhlutföllum í lag, en fjárhæðin skiptist samkvæmt lánasamningi á milli Byrs og MP-banka. Verðmæti hinna veðsettu hlutabréfa í Landsbankanum héldu hins vegar áfram að lækka og var því var ákveðið að ganga að þeim í október 2008. Þá færðust þeir yfir til MP-banka. Samkvæmt stefnunni kveðst sparisjóðurinn hafa fullvissu fyrir því að MP-banki hafi selt umrædd hlutabréf í Landsbankanum fyrir ríflega hálfan milljarð króna, án þess að greiða sparisjóðnum 60% upphæðarinnar eins og honum bar, eða tæplega 317 milljónir króna. Vísar sparisjóðurinn meðal annars í tölvubréf frá starfsmönnum MP-banka máli sínu til stuðnings. Margeiri Pétursyni, stjórnarformanni MP-banka, er stefnt fyrir hönd bankans en hann neitar sök í málinu. Upphæð kröfunar, auk dráttarvaxta, er um hálfur milljarður króna, segir í fréttinni.
Mest lesið Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Hefur barist í sjö ár eftir að hafa kært nauðgun á Ítalíu Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Fleiri fréttir Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent