Innlent

Makrílveiðar ganga vel

Mynd/Pjetur

Makrílveiðar íslenskra skipa innan íslensku fiskveiðilögsögunnar ganga vel þessa dagana. Um tíu skip eru að veiðum í dag eða á leið á miðin eða á landleið með afla.

Sem stendur er makrílinn að veiðast á tveimur svæðum við landið, út af Austfjörðum og á Grindavíkurdýpi suður af Reykjanesi, en þar eru nú sex skip, flest með heimahöfn í Vestmannaeyjum en þar landa þau sínum afla. Makríl hefur einnig verið landað í fjórum höfnum á Austfjörðum á undanförnu, á Vopnafirði, Neskaupstað, Eskifirði og á Fáskrúðsfirði, en Austfjarðaskipin hafa einkum verið að veiðum á Rósagarðinum suðaustur af landinu.

Sjómenn láta vel af aflanum og fyrir viðkomandi byggðarlög er hann einnig kærkomin búbót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×