Innlent

Lögmaður gagnrýnir harðlega gæsluvarðhald yfir flúorsmyglara

Lögmaður karlmanns, sem var handtekinn á Leifsstöð í desember með 3,7 kíló af 4-flúoróamfetamíni, gagnrýnir lögregluna harðlega fyrir að hafa ekki upplýst Héraðsdóm Reykjaness um eðli efnanna þegar ákvörðun var tekin um gæsluvarðhald yfir manninum þann 19. janúar síðastliðin.

Verjandi mannsins, Sveinn Andri Sveinsson, segir að sakborningurinn og hann sjálfur hafi ekki vitað að maðurinn hafi í raun verið með efni sem ekki eru flokkuð sem ólögleg eiturlyf á Íslandi, það er 4-flúoróamfetamín.

Athygli vakti í dag að Hæstiréttur Íslands snéri úrskurði Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald yfir manninum þar sem í ljós kom að maðurinn hafði þetta sérkennilega efni undi höndum þegar hann var handtekinn. Sjálfur stóð hinn meinti smyglari í þeirri trú að hann hefði verið með kókaín í tösku sem hann flutti hingað til lands.

Rannsókn Rannsóknarstofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræði leiddi hinsvegar í ljós í byrjun janúar að efnið sem maðurinn hafði undir höndum væri náskylt amfetamíni og heitir 4-flúoróamfetamín. Efnið er ekki ólöglegt á Íslandi en engar tilraunir hafa verið gerðar á mönnum til þess að kanna hvaða áhrif efnið hefur á mannskepnuna.

Því þykir Sveini Andra sérkennilegt að þessi matsgerð hafi ekki verið lögð fyrir dómara Héraðsdóms Reykjaness í janúar þegar krafist var gæsluvarðhalds yfir manninum sem er íslenskur og á þrítugsaldri.

Sjálfur er Sveinn Andri sannfærður um að dómurinn hefði ekki fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald hefði héraðsdómur verið upplýstur um raunverulegt eðli efnanna. Því telur Sveinn Andri að maðurinn hafi setið að ósekju í gæsluvarðhaldi í heilan mánuð.

Þess má einnig geta að matsskýrsla háskólans lá fyrir 7. janúar. Sakborningurinn hafi hinsvegar ekki verið upplýstir um efnin fyrr en 8. febrúar eða mánuði síðar.

Lögreglan fékk því fram gæsluvarðhald í formi blekkingar," segir Sveinn Andri sem er ekki sáttur við vinnubrögð lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×