Endurtalið í Hafnarfirði 31. janúar 2010 13:46 „Auðvitað fer maður í svona baráttu til að sigra en ég hef beðið miklu stærri ósigra í lífinu en þennan,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
Atkvæði í prófkjörum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði verða endurtalin þar sem fáum atkvæðum munaði milli manna. Tveimur atkvæðum munaði til að mynda á efstu mönnum í prófkjöri sjálfstæðismanna. Í prófkjöri Samfylkingarinnar breytist innbyrðis röð efstu átta manna talsvert eftir að fyrstu tölur voru birtar þar sem fáum atkvæðum munaði milli frambjóðenda. Kjörstjórn ákvað í gærkvöldi að telja aftur og ætlar að ljúka því verki fyrir mánudagskvöld. Tveimur atkvæðum munaði á Rósu Guðbjartsdóttur og Valdimar Svavarssyni þegar talningu lauk hjá sjálfstæðismönnum. Valdimar hlaut 460 atkvæði í fyrsta sæti en Rósa 458. „Svona hlutir geta gerst í prófkjörum og maður veit það áður en maður gefur kost á sér í slíka baráttu," segir Rósa. Hún telur eðlilegt að atkvæðin séu endurtalin þegar svo litlu muni milli frambjóðenda. Hún á von á því að endanleg niðurstaða liggi fyrir eftir helgi. Rósa segist taka niðurstöðunni í gær með jafnaðargeði. „Auðvitað fer maður í svona baráttu til að sigra en ég hef beðið miklu stærri ósigra í lífinu en þennan. Ég mun bara taka þessu og leggja Sjálfstæðisflokknum lið þannig að við fáum góða útkomu í vor." 1224 greiddu atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og 1127 hjá Samfylkingunni. Rósa segir þátttökuna í prófkjörinu góðan stuðning við Sjálfstæðisflokkinn inn í komandi kosningabaráttu. Hafnfirðingar hafi greinilega tekið eftir góðum verkum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn. „Þær tillögur sem við höfum verið að leggja fram hafa augljóslega náð til fólks."
Tengdar fréttir Bæjarfulltrúi ekki meðal efstu manna í Hafnarfirði Þegar búið er að telja 58% atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er bæjarfulltrúinn Gísli Valdimarsson ekki meðal efstu manna. Gísli var í sjöunda sæti þegar fyrstu tölur voru birtar en nú vermir Eyjólfur Sæmundsson, verkfræðingur og varabæjarfulltrúi, það sæti. 30. janúar 2010 22:01 Valdimar efstur í Hafnarfirði - ánægður með stuðninginn Valdimar Svavarsson, hagfræðingur, er efstur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Talinn hafa verið 575 atkvæði. Flokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa í kosningunum 2006. Rósa Guðbjartsdóttir, er eini bæjarfulltrúinn, sem sækist eftir endurkjöri. 30. janúar 2010 18:54 Guðmundur Rúnar í fyrsta sæti Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi og stjórnmálafræðingur, er í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði þegar talinn hafa verið rúmlega 400 atkvæði eða 35%. 1150 greiddu atkvæði. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, sóttist eftir sjötta sæti en bæjarfulltrúar í Hafnarfirði eru ellefu. 30. janúar 2010 21:17 Tveimur atkvæðum munaði í Hafnarfirði - Valdimar nýr oddviti Hagfræðingurinn Valdimar Svavarsson sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fór fram í dag. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi og fyrrverandi fréttamaður, hafnaði í öðru sæti. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa kjörna í bæjarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum. Rósa var eini bæjarfulltrúinn sem sóttist eftir endurkjöri. 30. janúar 2010 23:20 Bæjarfulltrúi féll í Hafnarfirði - Bæjarstjórinn fékk góða kosningu Bæjarfulltrúinn Gísli Ó. Valdimarsson féll í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti en hafnaði í því áttunda. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, fékk örugga kosningu í sjötta sæti líkt og hann vildi. 31. janúar 2010 08:33 Óbreytt staða í Hafnarfirði Röð efstu manna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hefur ekkert breyst frá því að fyrstu tölur voru birtar fyrr í kvöld. Valdimar Svavarsson, hagfræðingur, er í fyrsta sæti. Hann sagði í samtali við fréttastofu fyrr í kvöld að hann teldi að sigurstranglegur listi væri að myndast. 30. janúar 2010 20:42 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira
Bæjarfulltrúi ekki meðal efstu manna í Hafnarfirði Þegar búið er að telja 58% atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er bæjarfulltrúinn Gísli Valdimarsson ekki meðal efstu manna. Gísli var í sjöunda sæti þegar fyrstu tölur voru birtar en nú vermir Eyjólfur Sæmundsson, verkfræðingur og varabæjarfulltrúi, það sæti. 30. janúar 2010 22:01
Valdimar efstur í Hafnarfirði - ánægður með stuðninginn Valdimar Svavarsson, hagfræðingur, er efstur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Talinn hafa verið 575 atkvæði. Flokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa í kosningunum 2006. Rósa Guðbjartsdóttir, er eini bæjarfulltrúinn, sem sækist eftir endurkjöri. 30. janúar 2010 18:54
Guðmundur Rúnar í fyrsta sæti Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi og stjórnmálafræðingur, er í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði þegar talinn hafa verið rúmlega 400 atkvæði eða 35%. 1150 greiddu atkvæði. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, sóttist eftir sjötta sæti en bæjarfulltrúar í Hafnarfirði eru ellefu. 30. janúar 2010 21:17
Tveimur atkvæðum munaði í Hafnarfirði - Valdimar nýr oddviti Hagfræðingurinn Valdimar Svavarsson sigraði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sem fór fram í dag. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi og fyrrverandi fréttamaður, hafnaði í öðru sæti. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa kjörna í bæjarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum. Rósa var eini bæjarfulltrúinn sem sóttist eftir endurkjöri. 30. janúar 2010 23:20
Bæjarfulltrúi féll í Hafnarfirði - Bæjarstjórinn fékk góða kosningu Bæjarfulltrúinn Gísli Ó. Valdimarsson féll í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti en hafnaði í því áttunda. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, fékk örugga kosningu í sjötta sæti líkt og hann vildi. 31. janúar 2010 08:33
Óbreytt staða í Hafnarfirði Röð efstu manna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hefur ekkert breyst frá því að fyrstu tölur voru birtar fyrr í kvöld. Valdimar Svavarsson, hagfræðingur, er í fyrsta sæti. Hann sagði í samtali við fréttastofu fyrr í kvöld að hann teldi að sigurstranglegur listi væri að myndast. 30. janúar 2010 20:42