Innlent

Bæjarfulltrúi féll í Hafnarfirði - Bæjarstjórinn fékk góða kosningu

Úr safni. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri.
Úr safni. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri. Mynd/Daníel Rúnarsson

Bæjarfulltrúinn Gísli Ó. Valdimarsson féll í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti en hafnaði í því áttunda. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, fékk örugga kosningu í sjötta sæti líkt og hann vildi.

Talningu atkvæða lauk eftir miðnætti. Alls greiddu 1127 atkvæði í prófkjörinu af þeim 2150 sem voru á kjörskrá sem gerir 52.4% kjörsókn. 1091 atkvæði voru gild.

Röð efstu átta breytist talsvert eftir að fyrstu tölur voru birtar. Guðmundur Rúnar Árnason, Margrét Gauja Magnúsdóttir og Gunnar Axel Axelsson voru þó alltaf í þremur efstu.

Lokaröð efstu manna varð þessi:

1. Guðmundur Rúnar Árnason 519 atkvæði í fyrsta sæti

2. Margrét Gauja Magnúsdóttir 273 atkvæði í fyrsta til annað sæti

3. Gunnar Axel Axelsson 456 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti

4. Eyjólfur Þór Sæmundsson 313 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti

5. Sigríður Björk Jónsdóttir 347 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti

6. Lúðvík Geirsson 905 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti

7. Guðfinna Guðmundsdóttir 398 atkvæði í fyrsta til sjöunda sæti

8 Gísli Ó Valdimarsson 380 atkvæði í fyrsta til áttunda sæti

Kjörnefnd hefur ákveðið að telja aftur til staðfestingar og ljúka því verki fyrir mánudagskvöld.

Samfylkingin hlaut sjö bæjarfulltrúa í kosningunum 2006, Sjálfstæðisflokkur þrjá og VG einn.






Tengdar fréttir

Bæjarfulltrúi ekki meðal efstu manna í Hafnarfirði

Þegar búið er að telja 58% atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er bæjarfulltrúinn Gísli Valdimarsson ekki meðal efstu manna. Gísli var í sjöunda sæti þegar fyrstu tölur voru birtar en nú vermir Eyjólfur Sæmundsson, verkfræðingur og varabæjarfulltrúi, það sæti.

Guðmundur Rúnar í fyrsta sæti

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi og stjórnmálafræðingur, er í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði þegar talinn hafa verið rúmlega 400 atkvæði eða 35%. 1150 greiddu atkvæði. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, sóttist eftir sjötta sæti en bæjarfulltrúar í Hafnarfirði eru ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×