Skattman berst við dönsk gengi 20. janúar 2010 09:06
Dönsk skattayfirvöld hafa skorið upp herör gegn meðlimum í mótorhjólagengjum sem aka um með stolnar númeraplötur á fákum sínum. Það mun vera alþekkt bragð hjá meðlimum Hells Angels og Bandidos að skrúfa stolnar eða falsaðar númeraplötur á mótorhjólin sín til þess að komast undan því að borga skatta af tryllitækjunum. Glæpamenn frá austur Evrópu sem hafa tekið sér bólfestu í Danmörku hafa líka komist upp á lagið með þetta en nú á að fara ítarlega í saumana á þessari iðju. Í fyrra gerðu yfirvöld 264 ökutæki, bíla og mótorhjól, upptæk hjá meðlimum samtakanna. Fjármálaráðherra Danmerkur segir þetta mikilvægan lið í að stemma stigu við gengjunum og minnir á að glæpaforinginn Al Capone í Chicago hafi ekki náðst fyrr en menn fóru að skoða skattaskýrslur hans. Til stendur að herða viðurlög við skattaundanskotum af þessu tagi en í dag mega menn búast við 30 daga fangelsi verði þeir uppvísir að því að reyna að komast undan skattinum með þessum hætti.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira