Innlent

Um 20 - 30 manns gengu út vegna ræðu Ögmundar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ræða Ögmundar Jónassonar féll í grýttan jarðveg.
Ræða Ögmundar Jónassonar féll í grýttan jarðveg.
Um 20 - 30 manns gengu út landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag þegar að Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hélt ræðu þar í dag, samkvæmt upplýsingum Vísis.

Halldór Halldórsson, formaður sambandsins, segir í samtali við Vísi að þetta hafi gerst þegar að Ögmundur fór að ræða um ákæru Alþingis á hendur Geir Haarde. Mörgum hafi brugðið við það. Aðspurður um hvað honum hefði þótt um ræðuna segist Halldór ekki vilja tjá sig mikið um það. Hann hafi þó sagt í ræðustól eftir ræðu Ögmundar að honum hefði verið brugðið og að menn þyrftu að passa sig á refsigleðinni.

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var sett í gær og því lýkur á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×