Þrengt að íslenskri tungu 28. október 2010 22:17 Mynd/Pjetur „
Ef þessi þróun heldur áfram næstu áratugi og námskeiðum og heilum námsbrautum á ensku fjölgar blasir við að verulega mun þá þrengt að íslenskri tungu í háskólasamfélaginu á Íslandi. Svo gæti farið að íslenska yrði ekki lengur gjaldgeng í íslenskum háskólum og yrði að víkja þar fyrir ensku. Við það myndi staða íslenskrar tungu í íslensku samfélagi veikjast," segir í ályktun Íslenskrar málnefndar. Samkvæmt lögum er nefndinni skylt að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu og að þessu sinni er lögð áhersla á málnotkun í íslensku háskólasamfélagi. Í mörgum háskólagreinum er mikill meirihluti námsefnis á erlendum málum en svo hefur reyndar verið um langa hríð. Á síðustu árum hefur hlutur ensku vaxið mjög og jafnframt dregið úr notkun námsefnis á öðrum erlendum málum. Svo er komið að ætla má að námsefni á ensku sé um og yfir 90 af hundraði alls námsefnis á háskólastigi á Íslandi. „Mesta breytingin er þó líklega innan sjálfrar kennslustofunnar því að mjög hefur færst í vöxt að kennsla og verkefnavinna fari fram á ensku, bæði í grunnnámi og framhaldsnámi." Í ályktun nefndarinnar segir að alþjóðlegir straumar séu vitaskuld ómissandi þáttur í þróttmiklu háskólastarfi og fengur sé að bæði kennurum og nemendum utan úr heimi. „Sú spurning hlýtur þó að vakna hvort slík alþjóðleg samskipti þurfi í öllum tilvikum að vera á kostnað íslenskunnar." Þá segir í ályktuninni: „Um leið og íslenska hættir að vera gjaldgeng í háskólasamfélaginu stöðvast vöxtur hennar á sviði vísinda og fræða."
Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Innlent Fleiri fréttir Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ Sjá meira