Innlent

Rauði krossinn sendir færanlegar sjúkrastöðvar til Haítí

Haítí.
Haítí.

Sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands munu pakka 1.000 skyndihjálparpökkum í kvöld fyrir skyndihjálparteymi sem veita slösuðum aðstoð á Haítí.

Þetta er hluti af nauðsynlegum hjálpargögnum sem Alþjóða Rauða krossinn hefur sérstaklega beðið um að berist sem fyrst. Pökkunin fer frem í Rauðakrosshúsinu, Borgartúni 25, og hófst kl. 19:00.

Hjálpargögnin verða send með flugvél sem gert er ráð fyrir að muni flytja íslensku alþjóðabjörgunarsveitina frá Haítí. Rauði kross Íslands sendir einnig loftkælibúnað fyrir sjúkraskurðsstofur, rafstöðvar og rafala fyrir starfsemi tjaldsjúkrahúsa og færanlegra sjúkrastöðva með vélinni.

Nú eru yfir 400 starfsmenn Rauða krossins að störfum á Haítí og um 1.000 sjálfboðaliðar Rauða krossins á Haítí. Neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins hljóðar upp á 12,5 milljarða íslenskra króna til að aðstoða um 300,000 manns næstu þrjú árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×