Óttast erfðasjúkdóm og fer í skimun í dag 3. mars 2010 06:00 Skimað eftir færeyska dauðageninu. Mynd úr safni.
Heilu fjölskyldurnar í Færeyjum þjást af arfgenga sjúkdómnum CTD. Dæmi eru um að systkini deyja með stuttu millibili. Halldóra Storá, færeysk kona búsett á Íslandi um árabil, þekkir dæmi þessa, en ein frænka hennar og æskuvinkona hefur misst tvö börn úr CTD. Þriðja barnið er veikt og tvö bera veikina án einkenna. Það gera öll barnabörnin, níu talsins, líka. Nú þegar hefur um þriðjungur Færeyinga farið í blóðprufu vegna sjúkdómsins, aðallega ungt fólk, en um einn af hverjum sjö hundruð Færeyingum er með sjúkdóminn. Þetta er hundraðfalt hærra hlutfall en víðast í heimi. Á Íslandi hefur eitt barn greinst með sjúkdóminn, af átta til níu þúsund prófuðum. Halldóra segist fegin umfjölluninni á Íslandi, sérstaklega að heyra að hægt sé að fara í skimun á Landspítala, því hún hafi spurst fyrir hjá tveimur læknum hér, sem ekki þekktu til sjúkdómsins. „Það er þungu fargi af mér létt að þetta er komið á þetta stig. Nú fer ég í blóðprufu á morgun [í dag]," segir hún. Eins og kom fram í blaðinu í gær er CTD efnaskiptagalli sem getur lýst sér á marga vegu. Sérlega ógnvænlegt þykir að ungt fólk, áður án einkenna, getur látist fyrirvaralaust úr veikinni. Sjúkdómurinn komst í hámæli í Færeyjum í sumar þegar 25 ára kona var greind með hann á föstudegi og boðuð í lyfjagjöf á mánudegi. Hún lést á sunnudagsmorgni. Árið áður hafði frændi Halldóru, 21 árs gamall, orðið sama sjúkdómi að bráð. Nú líta margir Færeyingar til baka og spyrja sig hvort einhver bráðkvaddur ættinginn hafi ef til vill látist úr CTD. Frænka Halldóru er í þessum hópi, því fyrir utan fyrrgreind börn missti hún hvítvoðung. Sú stúlka hefði verið um fertugt í dag. „Þetta er hræðilegt," segir Halldóra. „Það var aldrei staðfest að hún hefði verið með þennan sjúkdóm. Þetta hefur ekkert verið kannað fyrr en núna." Halldóra þekkir dæmi um fólk sem hefur verið greint með CTD en hafði ekki vitað að nokkuð amaði að því. „Þetta er rosalega mikið áfall. En nú er þetta fólk komið á lyf og líður þá miklu betur," segir Halldóra. klemens@frettabladid.is
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Sjá meira