Álversstækkun í Straumsvík óviss þótt íbúar samþykki 9. mars 2010 03:15 Upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi segir forstjóra fyrirtækisins og forstjóra Rio Tinto Alcan í Evrópu hafa gengið á fund bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir nokkru og veitt svör við öllum spurningm bæjaryfirvalda.Fréttablaðið/GVA „
Það myndi hjálpa okkur ef bæjar-yfirvöld myndu lýsa yfir stuðningi við málið,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Alcan á Íslandi, um orð Rannveigar Rist, forstjóra fyrirtækisins, í bréfi til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær lýsir Rannveig í bréfi sínu áhyggjum af áhrifum þess að íbúar í Hafnarfirði synji álverinu aftur um stækkun í endurtekinni íbúakosningu. „Stuðningur bæjaryfirvalda myndi draga verulega úr þeim áhyggjum.“ skrifaði hún í bréfinu sem dagsett er 28. janúar síðastliðinn. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri sagði aðspurður í Fréttablaðinu í gær að honum væri ekki ljóst hvort forstjórinn væri í bréfinu að biðja bæjaryfirvöld um stuðning í aðdraganda væntanlegrar íbúakosningar sem enn á eftir að tímasetja. Upplýsingafulltrúi Alcan tekur af tvímæli um það eins og sjá má af ummælum hans hér að framan. Þá sagði bæjarstjórinn nauðsynlegt að fá fram skýra afstöðu Alcan varðandi nýju íbúakosninguna og að svör frá fyrirtækinu hafi ekki verið nógu afdráttarlaus. „Við áttum fund með bæjarstjóranum um það bil hálfum mánuði eftir að bréfið var sent og það var ekkert óljóst eftir þann fund af okkar hálfu,“ segir Ólafur Teitur hins vegar. „Rannveig Rist var á fundinum og líka Evrópuforstjórinn fyrir Rio Tinto Alcan. Þannig að þetta var gert með fulltingi móðurfélagsins og allt var klárt.“ Upplýsingafulltrúi Alcan segir það þannig nú vera bæjarins að ákveða hvort og hvenær eigi að fara í íbúakosningarnar sem fjórðungur atvæðisbærra manna í Hafnarfirði óskaði eftir. Fyrir sitt leyti vilji Alcan einfaldlega að kosið verði um óbreytta þá deiliskipulagstillögu sem kosið var um 2007. Fyrirtækið sé hins vegar í öðrum framkvæmdum um þessar mundir og hafi enga skoðun á því hvenær kosningin fari fram. „Við getum ekki lýst því yfir að við förum í þetta verkefni ef það verður samþykkt í atkvæðagreiðslunni enda er þetta fjárfesting fyrir hundruð milljarða króna. En við höfum áhuga á að auka umsvif okkar á Íslandi og já í þessari atkvæðagreiðslu yrði af okkar hálfu mjög vel þegið fyrsta skref í því að það geti orðið í Hafnarfirði,“ segir Ólafur Teitur. gar@frettabladid.is
Tengdar fréttir Vill nota veiðikvóta til kolefnisjöfnunar Hvalveiðar hafa losað gríðarlegt magn gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið í gegnum tíðina, þar sem mikið magn kolefnis er geymt í líkama svo stórra dýra. Þetta kom fram á ráðstefnu haffræðinga í Bandaríkjunum nýverið. 9. mars 2010 06:00 Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fleiri fréttir Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Sjá meira
Vill nota veiðikvóta til kolefnisjöfnunar Hvalveiðar hafa losað gríðarlegt magn gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið í gegnum tíðina, þar sem mikið magn kolefnis er geymt í líkama svo stórra dýra. Þetta kom fram á ráðstefnu haffræðinga í Bandaríkjunum nýverið. 9. mars 2010 06:00