Tilefni morðanna er enn hulin ráðgáta 4. júní 2010 05:00 Sorgmæddir aðstandendur Bretar eru slegnir vegna morðanna á miðvikudag. nordicphotos/AFP
Rannsóknarlögreglan í Bretlandi hefur reynt að finna vísbendingar um hvað varð til þess að Derrick Bird, 52 ára leigubílstjóri í norðvesturhluta Englands, tók upp á því að skjóta á fólk meðan hann ók um þorp og sveitir á miðvikudagsmorgun. Athyglin hefur meðal annars beinst að rifrildi hans við nokkra aðra leigubílstjóra kvöldið áður en hann tók að myrða. Einnig hefur athyglin beinst að hugsanlegum fjölskyldudeilum, sem sagðar eru snúast um arf. Lögreglan segir þó margt óljóst og fólk verði að sýna þolinmæði. Það sé erfitt og tímafrekt verk að púsla saman upplýsingum um ferðir Birds og hugsanlegar ástæður fyrir morðunum. Bird varð tólf manns að bana áður en hann stytti sér aldur. Ellefu manns að auki þurfti að flytja á sjúkrahús, og voru átta þeirra enn á sjúkrahúsi í gær. Þar af voru þrír í lífshættu, en eru það ekki lengur þótt ástand þeirra sé enn alvarlegt. Einn hinna látnu er Kevin Commons, lögfræðingur sem vann fyrir fjölskyldu Birds. Þá hafa breskir fjölmiðlar haldið því fram að tvíburabróðir Birds, David, sé meðal hinna látnu. Bird er sagður hafa verið rólyndismaður og almennt vingjarnlegur við aðra. „Hann hafði ekki mikil samskipti við aðra,“ segir June Lamb, kona sem þekkti vel til hans. „Hann var þögull, en þó enginn einfari. Hann skemmti sér með fólki.“- gb
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira