500 milljónir dala til Pakistans 20. júlí 2010 06:00 Utanríkisráðherrann tilkynnti um aðstoðina við Pakistan á fundi með utanríkisráðherra landsins, Shah Mahmood Quershi. fréttablaðið/ap
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að ríkisstjórn landsins hyggist verja 500 milljónum Bandaríkjadala í uppbyggingarstarf í landinu á næstunni. Peningarnir verða notaðir til þess að ljúka gerð tveggja virkjana sem munu framleiða rafmagn fyrir um 300 þúsund manns á svæðunum við landamæri Afganistans. Þá verða þrjár heilbrigðisstofnanir ýmist byggðar eða endurnýjaðar í mið- og suðurhluta landsins og aðgangur aukinn að hreinu drykkjarvatni. Bandaríkjastjórn reynir með þessu að eyða tortryggni Pakistana gagnvart henni. Clinton sagði á fundi í Pakistan í gær að það myndi reynast erfitt að byggja upp traust milli landanna á nýjan leik en verið væri að reyna að hefja nýtt tímabil samvinnu. Þá sagði hún markmiðið að fullvissa almenning í landinu um að einlægur áhugi væri á því að hjálpa Pakistan, og samvinnan snerist um margt fleira en baráttu gegn hryðjuverkum. Pakistan og Afganistan hafa stigið skref í áttina að bættum samskiptum með því að skrifa undir vöruskiptasamning á sunnudag. Bandaríkjastjórn hefur þrýst á löndin að bæta samskiptin og segist telja að samningurinn muni hafa jákvæð áhrif á bæði lönd. - þeb
Mest lesið Afdrif Hörpunnar enn á huldu Innlent RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Innlent Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Erlent Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Innlent „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Innlent Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Innlent Hnúfubakur í banastuði í Hvalfirði Innlent Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Innlent Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Innlent Verði að kunna íslensku til að geta hjúkrað Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Sjá meira