Innlent

Nýr framkvæmdastjóri SAMFOK

Bryndís Jónsdóttir, nýr framkvæmdastjóri SAMFOK.
Bryndís Jónsdóttir, nýr framkvæmdastjóri SAMFOK.
Bryndís Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Hún tekur við starfinu af Guðrúnu Valdimarsdóttur sem sagði starfi sínu lausu en hún skipar 2. sætið á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

SAMFOK annast upplýsingar og ráðgjöf um skóla- og uppeldismál til foreldra, foreldrafélaga, skólaráða og annarra. Helstu markmið samtakanna eru að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska og beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf. SAMFOK er sameiginlegur málsvari foreldra gagnvart stjórnvöldum, að fram kemur í tilkynningu.

Bryndís hefur áður starfað sem styrktar- og sjúkrasjóðsfulltrúi hjá Bandalagi háskólamanna, upplýsingafulltrúi hjá Námsgagnastofnun, grunnskólakennari, dagskrárgerðarmaður og blaðamaður. Bryndís er að ljúka MS í Mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands en hefur áður lokið B.ed gráðu við Kennaraháskóla Íslands. Bryndís er gift og á þrjú börn á aldrinum 3ja til 16 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×