Íslendingunum var aldrei ógnað, fengu bara þakklæti 22. janúar 2010 18:45
Íslenska rústabjörgunarsveitin mætti aðeins þakklæti og vinsemd frá íbúum Haiti og var aldrei ógnað þá viku sem hún var að störfum á hamfarasvæðinu. Meðlimir hennar fengu innilegar mótttökur við komuna til Íslands í nótt.Flugvélin lenti um tvöleyti í nótt á Keflavíkurflugvelli og fór inn í skýli á varnarsvæðinu þar sem búnaður hennar er geymdur en þar biðu nánustu aðstandendur sem og utanríkisráðherra, sem fyrir hönd ríkisstjórnarinnar þakkaði sveitinni fyrir frábær störf.Ráðherrann ákvað að sleppa öllum ræðuhöldum enda hópurinn þreyttur og áfjáður í að sameinast fjölskyldum sínum eftir níu daga úthald. Og móttökurnar voru hlýjar og innilega. Þetta var fyrsta rústabjörgunarsveitin sem komst á vettvang eftir jarðskjálftann mikla og hjá þeim stendur fyrsti sólarhringurinn upp úr, þegar tókst að bjarga þremur konum.Herflugvélar, herskip, herþyrlur og vopnaðir hermenn eru mjög áberandi í og við höfuðborg Haiti og gríðarleg áhersla lögð á að tryggja röð og reglu og þann skamma tíma sem við stöldruðum þarna við sýndist okkur meira streyma inn af hermönnum heldur en óbreyttum hjálparstarfsmönnum.Ástandinu á götum Port-au-Prince hefur verið líkt við stríðsvettvang en Íslendingunum mætti aðeins vinsemd og þakklæti, og þeim stóð aldrei nein ógn af því hrjáða fólki sem þar býr, að sögn Gísla Rafns Ólafssonar, stjórnanda Alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Þeir fengu þannig allt aðra mynd en þá sem lýst hefur verið í heimsfjölmiðlunum um óróa og að verið væri að ráðast á einhverja.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira