Innlent

Óbreytt líðan eftir rörasprengjuslys

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Líðan mannsins sem lenti í alvarlegu rörasprengjuslysi í Hveragerði fyrir tveimur dögum síðan er óbreytt, segir deildarlæknir á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn er sofandi í öndunarvél.

Það er til marks um alvarleika slyssins að þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og kom hún til móts við sjúkrabíl sem flutti manninn áleiðis til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×