Erlent

Hafa áhyggjur af olíulekanum

Bobby Jindal, ríkisstjóri Louisiana. Mynd/AFP
Bobby Jindal, ríkisstjóri Louisiana. Mynd/AFP

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fundaði í dag og í kvöld með embættismönnum vegna sprengingarinnar sem varð á olíuborpalli á Mexíkóflóa í dag. Björgunarmenn segja olíuslikju á sjónum út af ströndum Louisiana. Obama mun fylgjast náið með framvindu mála, að sögn Robert Gibbs talsmanns Hvíta hússins.

Bobby Jindal, ríkisstjóri Louisiana, segir að ekki liggi fyrir af hverju eldur

kviknaði í olíuborpallinum. Pallurinn er í eigu bandaríska fyrirtækisins Marine Energy. 11 starfsmenn fyrirtækisins björguðust en einn þeirra hlaut minniháttar meiðsl.

Nokkrir mánuðir eru frá því að borpallur BP spakk sem varð til þess að gríðarlegt magn af olíu lak í Mexíkóflóa.










Tengdar fréttir

Annar olíuborpallur á Mexíkóflóa sprakk

Olíuborpallur sprakk á Mexíkóflóa í dag á svipuðum slóðum og annar olíuborpallur sprakk í apríl. Umræddur borpallur er í eigu fyrirtækisins Mariner Energy. Þrettán starfsmönnum tókst að komast undan og hefur þeim nú verið bjargað, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir yfirmanni hjá bandarísku strandgæslunni að olíuflekkir hafi sést við borpallinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×