Innlent

Umfjöllun erlendis skilar ferðamönnum

Á laugavegi Ferðamenn voru fjölmennir hérlendis í febrúar.
Á laugavegi Ferðamenn voru fjölmennir hérlendis í febrúar.

Alls komu 3.600 gestir í Upplýsingamiðstöð ferðamanna vikuna 14. til 20. febrúar síðastliðinn. Þetta er um 25 prósent fjölgun miðað við venjulega febrúarviku samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu.

Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður stofunnar, segir fjölgunina skýrast af vetrarfríi í Evrópu og Valentínusarferðum frá Bretlandi.

Hún segist bjartsýn á sumarið, ekki síst vegna mikillar umfjöllunar um Ísland í erlendum fjölmiðlum. Þannig var landið valið það besta fyrir sund í febrúarhefti bandaríska ferðatímaritsins Business Traveler.

„Við fáum gríðarlega mikið af fyrirspurnum frá blaðamönnum frá Evrópu og Bandaríkjunum, meðal annars ferða- og lífsstílstímaritum,“ segir Sif.

Hún býst þó ekki við sprengingu í fjölda ferðamanna. „Það eimir enn eftir af kreppu í heiminum. Engar sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar fyrir sumarið.“

Því verður sami fjöldi starfsmanna í miðstöðvum borgarinnar í sumar.

Í könnun Ferðamálastofu kom fram að áætlaðar tekjur af komu ferðamanna til landsins árið 2009 hafi verið 155 milljarðar króna. Þetta er 21 prósents raunaukning frá árinu áður og er ferðaþjónustan orðin ein helsta gjaldeyrisuppspretta þjóðarinnar. - kk




Fleiri fréttir

Sjá meira


×