Erlent

Farþegar héldu að þeir myndu deyja

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vélin var stödd yfir Norðursjó.
Vélin var stödd yfir Norðursjó.
„Við neyðumst hugsanlega til þess að nauðlenda á sjónum innan stundar". Svona hljóðuðu skilaboð úr tölvu í flugvél á vegum British Airways sem var á leið frá London til Hong Kong á dögunum. „Fólk var slegið. Við héldum öll að við myndum deyja," segir einn af farþegunum við breska blaðið The Sun.

Alls voru 275 farþegar í vélinni þegar tölvan las skilaboðin. Vélin var þá stödd yfir Norðursjó. Enginn hætta var á ferðinni heldur hafði flugstjórinn ýtt á rangan hnapp í stjórnborðinu hjá sér. Stuttu eftir að skilaboðin voru lesin hóf áhöfn vélarinnar að útskýra fyrir farþegum hvað hafði gerst.

British Airways hefur beðist afsökunar á atvikinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×